Hunda- og kattahreinsun í Langanesbyggð föstudaginn 11. desember n.k.
			
					07.12.2020			
	
                    
                                    
                            Fréttir                        
                            
            Boðið verður upp á hunda- og kattahreinsun á Þórshöfn og á Bakkafirði föstudaginn 11. desember n.k.
Staðsetning: Þórshöfn: Í áhaldahúsinu milli kl: 13:00-15:00.
Bakkafirði: Í áhaldahúsinu milli kl: 16:00-16:30
Þeir sem eru með óskráða hunda eða ketti geta skráð á staðnum og látið taka mynd af hundinum/kettinum. Hunda og kattahreinsun er innifalin í skráningargjaldi hunda og katta í Langanesbyggð.
Hægt er að láta örmerkja dýrin á staðnum en slíkt er gert á kostnað eigenda.
Allir hunda og kattaeigendur eru hvattir til að láta hreinsa gæludýrin sín.
