Hreinsunardagurinn i Langanesbyggð 2026
Hreinsunardagurinn i Langanesbyggð 2026
Íbúar eru hvattir til að taka þátt með sveitarfélaginu í tiltekt og hreinsun laugardaginn 23. maí kl. 11:00 – 13:00. Fyrir hreinsunardeginum er áralöng hefð í sveitarfélaginu og getur verið hin mesta fjölskylduskemmtun. Hreinsun fer fram á almenningssvæðum og utanvega. Lóðarhafar eru hvattir til að hreinsa til hjá sér í aðdraganda þessa dags.
Starfsfólk þjónustumiðstöðvar mun útdeila tómum ruslapokum víðsvegar og taka ruslapoka og stærra rusl sem skilið er eftir í vegkanti innan sveitarfélagsins og koma í viðeigandi farveg.
Við lok hreinsunar eða um klukkan 13:00 verða í boði grillaðar pylsur og djús við íþróttahúsið Ver á Þórshöfn og Hafnartanga á Bakkfirði.
Ábendingar eru vel þegnar á póstfangið almarm@langanesbyggd.is
Umhverfisfulltrúi Langanesbyggðar