Fara í efni

Íbúum Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps boðið í kaffisamsæti

Fréttir

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú koma í opinbera heimsókn á Þórshöfn og Bakkafjörð fimmtudaginn 24. mars. Í tilfefni heimsóknarinnar býður sveitarstjórn Langanesbyggðar til kaffisamsætis í Þórsveri kl. 15:00 þann dag - Öllum íbúum í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi er boðið að koma og hitta forsetahjónin. 

Það eru vinsamleg tilmæli að þeir sem hafa tök á og aðstöðu til dragi fána að hún i tilefni af heimsókninni.