Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir kennurum skólaveturinn 2026-2027
Í Grunnskólanum á Þórshöfn stunda um 50 nemendur nám í nánu og traustu skólasamfélagi.
Lausar stöður til umsóknar:
Kennsla í list- og verkgreinum á öllum stigum (100%)
Faggreinakennsla á yngsta og miðstigi (50%)
Sundkennsla (hlutastarf)
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leyfi til að nota starfsheitið kennari
· Færni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
· Áhugi og hæfni til að starfa í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
Kunnátta í íslensku á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026 og er ráðið í stöðurnar frá 1.ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, grunnskolinn.com
Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is
Hilma Steinarsdóttir
Skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn
Sími 468-1164
Netfang: hilma@thorshafnarskoli.is