Gangnaseðill í Langanesbyggð 2026
Gangnaseðill 2026
Hér gefur að líta gangnaseðil fyrir hinar þrjár fjallskiladeildir í Langanesbyggð.
- Þistilfjarðardeild
- Langanesdeild vestari
- Langanesdeild austari
Eins og fyrri ár er bændum að mestu gert að smala það landsvæði þar sem þeir helst eiga fjárvon á og leitast hefur verið við að jafna verkum niður á þá bæði eftir óskum en þó þannig að jafnræðis sé að mestu gætt eftir fjáreign innan hvers landssvæðis þar sem þeir helst eiga fjárvon á.
Rétt er að minna á að búast má við skertu farsímasambandi á afréttum eftir lokun 3G símkerfisins.
Fé úr Þistilfirði og af Langanesi sem kemur til réttar í Öxarfirði verður flutt í skilarétt í Garði. Soffía Björgvinsdóttir mun láta fjáreigendur vita og þeir sjá sjálfir um að sækja sínar kindur þangað.
Fé úr Öxarfirði sem kemur til réttar í Langanesbyggð skal komið til skilaréttar á Gunnarsstöðum eða Garði, og skal láta viðkomandi réttarstjóra vita. Þó sækja Öxfirðingar sitt fé sjálfir á fyrstu rétt á: Álandstungurétt, Fjallalækjarselsrétt og Garðsrétt
Eigendur fjár úr Langanesbyggð sem kemur til réttar á Katastaðarétt verða látnir vita, og þeir sjá sjálfir um að sækja sitt fé þangað.
Allir flutningar innan fjallskiladeilda eru lagðir af á kostnað fjallaskilasjóðs.
Réttarstjórar á heimaréttum skulu tilkynna eigendum sauðfjár innan fjallskiladeildar, sem þar koma fyrir, um þær, ber þeim þá, að sækja þær á eigin kostnað.
Gangnaforingjar bera ábyrgð á framkvæmd gangna, þeir boða til gangna með hæfilegum fyrirvara, meta veðurskilyrði, boða breytingar. Gæta að skepnum og mönnum. Jafnframt eru þeir réttarstjórar ef aðrir eru ekki tilgreindir.
Mikilvægt er að bændur mæti til smölunar með þann mannskap sem til er ætlast samkvæmt gagnaseðli.
Dagsetningar gangna eru á jöfnunarblaði, ódagsettar göngur, tímasetur gangnaforingi.
Réttir eru áætlaðar eftirtalda daga:
Garðsrétt 6. september
Fjallalækjarselsrétt 6. september
Álandstungurétt 13. september
Dalsrétt 12. september
Hvammsrétt 11. september
Gunnarsstaðarétt 12. September - Réttarstjóri Axel Jóhannesson
Tunguselsrétt 8. september – Réttarstjóri Ævar Rafn Marinósson
Hallgilsstaðarétt 8. september - Réttarstjóri Jóhannes Ingi Árnason
Miðfjarðarrétt 15. september
Þorvaldsstaðarétt 19. September
Bakkarétt 13. September
Skeggjastaðir 18. September
Miðfjarðarnesrétt 7. september
Aðrar réttir eru samdægurs og smalað er til þeirra.
Hér er hægt að sækja gangnaseðil 2026 ásamt niðurjöfnun verka.