Fara í efni

Frestur til úthlutunar leyfa til refaveiða framlengdur

Fréttir

Ákveðið hefur verið að framlengja frest fyrir úthlutun leyfa til refaveiða í Langanesbyggð fyrir neðangreind svæði. Umsóknir um svæði ásamt nafni á refaskyttu(m) skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar, Langanesvegi 2 fyrir þriðjduaginn 10. maí n.k.

SVÆÐI

Svæði 1 Frá Fonti að Brimnesá
Svæði 2 Utan Brekknaheiði og út fyrir Naddamúla
Svæði 4 Brekknaheiði
Svæði 5 Tunguselsheiði
Svæði 6 Tunguselsheiði frá Finnafjarðará í norðri og að sveitarfélagamörkum að undanskilinni Viðvík.
Svæði 7 Viðvík

Ef fleiri en einn sækja um ákveðið svæði verður dregið úr innsendum umsóknum. Gerður verður samningur við refaskyttur til þriggja ára í senn um refaveiðar á viðkomandi svæði.

Sveitarstjóri