Framtíðarfyrirkomulag sorphirðu í Langanesbyggð
Á fundi byggðarráðs þann 19. febrúar s.l. voru tillögur umhverfisfulltrúa um framtíðarfyrirkomulag í úrgangsstjórnun teknar fyrir. Gerð var grein fyrir fyrirkomulagi sorpmála í framtíðinni og þær forsendur sem það byggir á. Eftir vel ígrundaðan undirbúning hefur verið tekin ákvörðun um að sveitarfélagið reki úrgangsþjónustu með eigin tækjakosti og starfsfólki eftir stofnun B sjóðs félags og fjárfest í tækjabúnaði til þess og skráningu sem þjónustuaðila hjá Úrvinnslusjóði lýkur.
Þangað til munu íbúar Langanesbyggðar vera áfram þjónustaðir af Íslenska Gámafélaginu (ÍG) eins og verið hefur. Reikna má með einhverjum breytingum á árinu við innleiðingu nýs fyrirkomulags úrgangsmála sem verður ítarlega kynnt áður.
Stefnt er að því að nýtt fyrirkomulag úrgangsmála verði tekið í gagnið í skrefum á þessu ári og innleiðingu að fullu lokið við lok árs 2026. Þær breytingar sem verða á fyrirkomulagi úrgangsmála eru þær helstar að flokkun á heimilum og fyrirtækjum verður samkvæmt reglugerð 803/2023 um meðferð úrgangs og úrgangi sem safnað verður við hvert heimili skipt í fjóra flokka; pappa og pappír, plast, lífrænan úrgangs og óflokkað (almennt rusl). Einnig verður ný móttökustöð á Þórshöfn tekin í notkun þegar bygging hennar og frágangur á lóð er komin í viðeigandi horf og ný grenndarstöð á Bakkafirði sett upp og tekin í notkun.
Á komandi vikum mun fyrirkomulag sorphirðu við heimili vera kynnt almenningi en gert er ráð fyrir að íbúar munu hafa útiílát (hefðbundnar ruslatunnur) fyrir:
1) Pappa og pappír.
2) Plast.
3) Óflokkaðan úrgang.
Lífrænum úrgangi verður safnað í lokuð ílát sem geta verið innandyra en settar út á hirðudegi á fyrirframákveðnum dögum samkvæmt dagatali þar um. Stærð þeirra íláta verða frá 4-32 lítra fötur með þéttu loki. Nánari útfærsla mun verða ítarlega kynnt þegar nær dregur breytingum við hirðingu á heimils sorpi sem og breytingar á gjaldsskrám og reglum samhliða nýju fyrirkomulagi úrgangsmála.
Tilgangur þessara miklu breytinga er að sveitarfélagið greiði ekki með sorpmálum (sem er ekki heimilt) með hagræðingu og að uppfylla lög og reglur þar um. Það næst fram með frekari flokkun sem sparar útgjöld sveitarfélagins fyrir hirðingu, flutning, flokkun og förgun. Breytingarnar hafa einnig í för með sér nokkra valkosti íbúa við að losa sig við sorp.
Í Langanesbyggð er að rísa fyrirmyndaraðstaða til úrgangsmeðhöndlunar og tækifæri til að ná miklum árangri í úrgangsmálum meðfram því. Óskað er eftir að ábendingum um efnið berist til umhverfisfulltrúa Langanesbyggðar á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 468-1220 eða almarm@langanesbyggd.is