Framboð til sveitarstjórnar Langanesbyggðar 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Frestur til að skila framboðslistum er til föstudagsins 10. apríl 2026 kl. 12:00 á hádegi.
Framboðslistar skulu skipaðir af 7-14 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 20-40 meðmælenda. Frambjóðendur og meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Langanesbyggð og hver meðmælandi getur einungis mælt með einu framboði.
Móttaka á framboðslistum verður á skrifstofu Langanesbyggðar, Langanesvegi 2, föstudaginn 10. apríl 2026 frá kl. 11:00-12:00.
Nánari upplýsingar um framkvæmd og framboð má finna í kosningalögum nr. 112/2021 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.
Einnig veitir Oddur Skúlason, formaður yfirkjörstjórnar, upplýsingar og leiðbeiningar vegna undirbúnings framboðslista og framkvæmd kosninganna í síma: 861-2199.
Yfirkjörstjórn Langanesbyggðar
Oddur Skúlason, formaður
Árni Davíð Haraldsson
Sigríður Jóhannesdóttir