Farið sparlega með vatn.
05.02.2026
Fréttir
Íbúar eru hvattir til að fara sparlega með vatn á meðan loft er að tæmast úr lögn frá fjallinu. Rennsli hefur ekki náð fullum þrýstingi í miðlunargeymi. Þetta tekur einhvern tíma og íbúar beðnir um að sýna þolinmæði á meðan.
Jafnframt er beðist velvirðingar á þessum truflunum og bilunum undanfarna daga sem hafa valdið íbúum ónæði.
Björn S. Lárusson
Sveitarstjóri