Fara í efni

Evrópska Nýtnivikan

Fréttir

Dagana 18.-26. nóvember næstkomandi stendur Evrópska Nýtnivikan yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Þema ársins er umbúðir undir slagorðinu Höfum það umbúðalaust!

Fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir, skólar og almenningur eru hvött til þess að leggja sitt af mörkum til að draga úr notkun einnota umbúða. Við í verkefninu Saman gegn sóun í samstarfi við Reykjavíkurborg höfum útbúið einfalt kynningarefni sem nýtist fyrirtækjum og einstaklingum sem vilja prófa sig áfram í umbúðalausum og fjölnota lausnum í Nýtnivikunni. Efnið má nálgast hér.

Við hvetjum alla sem taka þátt í Nýtnivikunni í ár af einhverju tagi; selja umbúðalaust, kaupa umbúðalaust, neyta umbúðalaust, standa fyrir einhverskonar viðburðum eða hvað annað sem er að deila því með okkur á Facebook síðu Saman gegn sóun eða Instagram, með því að merkja Saman gegn sóun eða senda okkur skilaboð og við deilum því áfram.

Hlökkum til Nýtnivikunnar með ykkur!

Bestu kveðjur, Best regards
Birgitta, Hildur Mist og Þorbjörg Sandra
Sérfræðingar / Advisors
Svið loftslags og hringrásarhagkerfis, Department of Climate and Circular Economy