Fara í efni

Ertu með frábæra hugmynd?

Fréttir
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2019. Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00 á hádegi 10. október. Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00 á hádegi 7. nóvember. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðum Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna.

Ráðgjafar verkefnisins verða til viðtals í Menntasetrinu á Þórshöfn fimmtudaginn  18. október nk. milli kl. 10 og 11:30

Frekari upplýsingar veita:

  • Ari Páll Pálsson Netfang: aripall@atthing.is Sími 464 0416
  • Baldvin Valdemarsson Netfang: baldvin@afe.is Sími 460 5701
  • Vigdís Rún Jónsdóttir Netfang: vigdis@eything.is Sími 464 9935