Fara í efni

Kosningar til Alþingis 2021

Fréttir

Kosningar til Alþingis fara fram laugardaginn 25. september. Í Langanesbyggð eru tvær kjördeildir. Á Þórshöfn er kosið í Félagsheimilinu Þórsveri og á Bakkafirði er kosið í grunnskólanum. Kjörfundur hefst kl 10:00 og lýkur kl. 22:00. Kjósendur athugið, að hafi enginn kosið í hálfa klukkustund eftir kl. 18 á kjördag hefur kjörstjórn heimild til að loka kjörstað. Kjósendur eru því hvattir til að mæta snemma á kjörstað. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur á báðum stöðum. Aðalsímar yfirkjörstjórnar eru; 8942187, 8940688 og 8994582. 
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla stendur yfir á skrifstofu Langanesbyggðar til föstudagsins 24. september. Opið er frá kl. 10:00 til 14:00. Sérstakar reglur gilda um þá sem eru í sóttkví eða einangrun vegna covid á kjördag og allar upplýsingar um það eru á heimasíðu sýslumanns. 
https://island.is/s/syslumenn/kosningar