Fara í efni

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust óskar eftir starfsmanni

Fréttir

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í ræstingar

Starfið felst í ræstingum á Nausti. Um er að ræða 50% starf. Á Nausti er rými fyrir 14 íbúa. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september n.k.

Nánari upplýsingar gefur Rósa Jóhannesdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is