Fara í efni

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í afleysingu.

Fréttir

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í afleysingu. Starfið felst í umönnun aldraðra og öðrum tilfallandi störfum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttafélag. Um er að ræða vaktavinnu og til langs tíma.

Á Nausti eru 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Nánari upplýsingar gefa Halldóra Pálsdóttir eða Sólrún Arney Siggeirsdóttir í síma 468-1322.