Fara í efni

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir staðgengli hjúkrunarforstjóra

Fréttir

Óskað er eftir staðgengli hjúkrunarforstjóra tímabilið janúar – mars 2020.


Ákveðinn sveigjanleiki er á vinnutíma og þarf að vera möguleiki á að sinna bakvöktum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.

 Á Nausti er rými fyrir 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

 Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322 eða á naust@langanesbyggd.is