Drög að atvinnustefnu kynnt á rafrænum íbúafundi 28. maí
22.05.2025
Fréttir
Íbúum er boðið á opinn rafrænan kynningarfund til að ræða atvinnustefnu Langanesbyggðar, sem hefur verið í vinnslu í vetur, næstkomandi miðvikudag 28. maí kl. 16-17. Hægt er að tengjast fundinum hér .
Gunnar Már Gunnarsson, starfsmaður SSNE, og Sigríður Friðný Halldórsdóttir, verkefnastjóri Kistunnar, standa að fundinum fyrir hönd Langanesbyggðar.
Að frumkvæði atvinnu- og nýsköpunarnefndar í Langanesbyggð var byrjað að leggja drög að atvinnustefnu 2023-2024. Ýmis stefnumótandi vinna fór fram á síðasta ári, sem nýtist og hefur skírskotun til undirbúnings nýrrar atvinnustefnu. Á þessu tímabili hefur sömuleiðis verið haft samráð við ýmsa hagaðila og staðið að upplýsingaöflun.
Í þessu samhengi má nefna:
- Samfélagssáttmáli Bakkafjarðar 2022 https://www.langanesbyggd.is/static/files/frettir/2022/samfelagssattmali_prenta.pdf
- SVÓT greining á landbúnaði í Langanesbyggð og Norðurþingi 2023.
- Vinnustofa með sveitarstjórn um fjárfestingartækifæri í Langanesbyggð - áhersluverkefni SSNE 2024. https://www.ssne.is/is/moya/page/auknar-fjarfestingar-a-nordulandi-eystra
- Áfangastaðaáætlun Norðurhjarasvæðisins 2024 https://www.northiceland.is/afangastadaaaetlun/throun/svaedisbundin-verkefni/nordurhjarasvaedi-stodugreining-og-adgerdaaaetlun
- Stefna sveitarstjórnar Langanesbyggðar vegna uppbyggingar í Finnafirði 2024
- Byggðabragur - verkfærakista unga fólksins, vinnustofur 2025 https://www.bifrost.is/media/1/byggdabragur-unga-folksins-verkfaerakista-lokaeintak.pdf
- Fyrirtækjaþing í Langanesbyggð 2025