Fara í efni

Brunavarnir Langanesbyggðar

Fréttir

Kæru íbúar Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps

 

Nú fer að líða að jólum og þá er lag að yfirfara brunavarnirnar á heimilum okkar, því þar eru jú mestu verðmæti landsins, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.

Hér eru svo nokkrir punktar sem við þurfum að yfirfara:

  • REYKSKYNJARI  Í LAGI!!!
  • REYKSKYNJARI  Í LAGI!!!
  • Skipta um rafhlöður í öllum reykskynjurum á hverju ári.
  • Endurnýja  reykskynjara  á 10 ára fresti.
  • Prófa alla reykskynjara minnst tvisvar á ári
  • Hafa slökkvitæki sem næst útihurð á áberandi stað
  • Minnst 9 lítra léttvatnstæki eða 6 kg dufttæki.
  • Eldvarnarteppi í öll eldhús. Skoða teppin árlega.
  • Flóttaleiðir gera áætlun um hvernig við yfirgefum húsið.
  • Hafa tvær flóttaleiðir.
  • Allir þekki áætluna og hvernig skuli bregðast við.
  • Vera búin að ákveða stað til að hittast á.
  • Allir þekki 112 númer.
  • Í bruna yfirgefa Húsnæði
  • Hringja í 112.
  • Ekki fara aftur inn í brennandi hús.

 

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

 

                                                          Slökkvilið  Langanesbyggðar,