Fara í efni

Breyttar reglur um sóttkví og smitgát vegna Covid 19

Fréttir

Heilbrigðisráherra hefur breytingar á reglugerð um sóttkví og smitgát. Breytingarnar eru eftirfarandi:

Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.
1) Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
2) Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
3) Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.

Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
1) Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
2) Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
3) Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.