Fara í efni

Breytingar á flugáætlun til Þórshafnar

Fréttir

Frá og með mánudeginum 14. febrúar nk. gengur í gildi breyting á flugi til Þórshafnar og Vopnafjarðar.

Framvegis verður flug á föstudögum og sunnudögum til Þórshafnar kl. 16:35 og brottför 25 mín. síðar eða kl. 16:50. Í stað sunnudagsflugs fellur flug niður á þriðjudögum. Flug aðra daga, þ.e. mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga verður óbreytt skv. áætlun, koma til Þórshafnar kl. 10:30 og brottför kl. 10:45. Sjá nánar tímaáætlun á mynd sem fylgir fréttinni.

Þetta breytta fyrirkomulag gefur okkur betri möguleika á að nýta flug fyrir helgarferðir til Akureyrar eða annað. Eins getur þessi breyting nýst nemendum t.d. á Akureyri í skjótari heimferðir um helgar og að sjálfsöðu öðrum í helgarferðir til okkar.