Fara í efni

Breyting á dagskrá heimsóknar forseta Íslands

Fréttir

Af óviðráðanlegum orsökum þarf að breyta áður auglýstri og útsendri dagskrá á heimsókn forseta Íslands og forsetafrúar í Langanesbyggð. Forsetinn mun hitta íbúa í Þórsveri kl. 15:00 í stað kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffi og veitingar í boði sveitarstjórnar. Forsetinn og forsetafrúin vilja gjarnan hitta og sjá sem flesta íbúa í heimsókninni. Við förum þess á leit við íbúa að þeir láti sem flesta vita af breyttum tíma.  

Endanleg dagskrá mun liggja fyrir þriðjudaginn 22 mars.