Fara í efni

Brák íbúðafélag og Langanesbyggð óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða

Fréttir

Langanesbyggð og Brák íbúðafélag stefna á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Þórshöfn og auglýsa því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Brák íbúðafélag.
Gögn fyrir áhugasama samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á brakibudafelag@brakibudafelag.is og skal gögnum skilað fyrir föstudaginn 14. júní 2024.
Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.
Nánari upplýsingar veita Elmar Erlendsson framkvæmdastjóri Brákar íbúðafélags elmar.erlendsson@brakibudafelag.is  og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar bjorn@langanesbyggd.is 

Björn S. Lárusson, sveitarstjóri