Björn S. Lárusson ráðinn skrifstofustjóri Langanesbyggðar
			
					30.11.2020			
	
                    
                                    
                            Fréttir                        
                            
            Björn S. Lárusson hefur verið ráðinn nýr skrifstofustjóri Langanesbyggðar. Hann hefur störf í byrjun næsta árs.
Björn hefur fjölþætta fjölþætta reynslu og menntun að baki. Hann er með B.Sc. próf í viðskiptafræðum frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst með áherslu á markaðsmál og stjórnun. Hann hefur starfað sem markaðs- og atvinnufulltrúi hjá Akraneskaupstað, fréttamaður og fréttaritari hjá RUV auk starfa í ferðaþjónustu sem ráðgjafi og leiðsögumaður.
 
		Björn er kvæntur Eydísi Steindórsdóttur þjónustufulltrúa.
