Fara í efni

Betri Bakkafjörður

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna í tengslum við verkefnið „Betri Bakkafjörður“

Alþingi ákvað að veita auknu fjármagni til verkefna á vegum Brothættra byggða. Verkefnisstjórn Betri Bakkafjörður hefur í framhaldi af því, ákveðið að framlengja umsóknarfrest sem rann út þann 17. apríl sl. til loka sunnudagsins 10. maí 2020.  Til ráðstöfunar eru 13,5 milljónir.  

Athugið að úr sterkustu umsóknunum mun verkefnisstjórn velja 1-2 umsóknir sem gefst færi á að sækja í svokallaðan Öndvegissjóð Brothættra byggða. Nánari upplýsingar á meðfylgjandi blaði frá Byggðastofnun.
Verkefni sem verða styrkt að þessu sinni og hljóta styrk úr sérstakri úthlutun er Alþingi samþykkti á þessu ári þurfa að vera hafin í síðasta lagi 1. september 2020 og lokið eigi síðar en 1. apríl 2021 og eru umsækjendur beðnir um að hafa það að leiðarljósi við gerð umsókna.

Meginmarkmið verkefnisins Betri Bakkafjörður eru eftirfarandi:

  • Sterkir samfélagsinnviðir
  • Öflugt atvinnulíf
  • Aðlandi ímynd Bakkafjarðar
  • Skapandi mannlíf

Væntanlegar umsóknir þurfa að taka mið af þessum markmiðum.

Á vef Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) eru nánari reglur um styrkveitingar. Á vef Atvinnurþróunarfélags Þingeyinga  (www.atthing.is) má nálgast umsóknareyðublað sem umsækjendur um styrk skulu notast við en þar má einnig finna yfirlit yfir áherslur verkefnisins.
Athugið að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda. Það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og samstarfsaðila. Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina.
Umsækjendur er hvattir til að lesa ofangreindar leiðbeiningar og leita sér aðstoðar hjá verkefnisstjóra. Vönduð umsókn sem styður við framtíðarsýn og meginmarkmið verkefnisins er líklegri til árangurs.

 Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Ólafur Áki Ragnarsson verkefnisstjóri í síma 893-6434 eða á netfanginu olafur@ssne.is