Fara í efni

Aukaúthlutun úr sóknaráætlun Norðurlands eystra fyrir árið 2020

Fréttir

 Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra auglýsa eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Um er að ræða viðbótarfjármagn af hálfu ríkisins sem veitt er í sóknaráætlanir landshluta, sem og aukið fjármagn samtakanna, vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Alls eru um 42 m.kr. í pottinum.

 Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar Norðurlands eystra og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir umsóknum um atvinnuskapandi verkefni á sviði nýsköpunar-, atvinnuþróunar-, menningar- og umhverfismála sem geta hafist sem fyrst. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn samtakanna.

 Umsækjendur sem ekki fengu styrk úr sóknaráætlun fyrr á árinu, eða telja þörf á auknu fjármagni í verkefni, eru hvattir til að endurnýja umsóknir sínar og staðfæra að núverandi aðstæðum. Yfirlit yfir áhersluverkefni Eyþings/SSNE má finna á vefnum eything.is undir Sóknaráætlun.

FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA:

Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is sími 464 0416

Baldvin Valdemarsson baldvin@afe.is sími 460 5701

Vigdís Rún Jónsdóttir vigdis@eything.is sími 464 9935

Hægt er að skila inn umsóknum til og með 30. apríl nk. á netfangið helgamaria@ssne.is

Einnig má nálgast umsóknareyðublaðið á vef Eyþings, www.eything.is