Fara í efni

Augýsing um staðfestingu á sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps

Fréttir

 

AUGLÝSING
um staðfestingu innviðaráðuneytisins á sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps í eitt sveitarfélag.

Með vísan til 124. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, tilkynnir ráðuneytið að það hefur í dag staðfest sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps í eitt sveitarfélag.

Boða skal til sveitarstjórnarkosninga 14. maí næstkomandi og kjósa sjö fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn sameinaða sveitarfélagsins 29. maí 2022 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Ráðuneytið hefur staðfest samþykkt um stjórn og fundarsköp sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps sem mun gilda fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verðið sett ný samþykkt. Heiti hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst sérstaklega.

Íbúar sveitarfélaganna skulu vera þegnar sameinaða sveitarfélagsins. Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land sem nú tilheyrir sveitarfélögunum tveimur. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til sameinaða sveitarfélagsins. Skjöl og bókhaldsgögn beggja sveitarfélaga skulu afhent sameinaða sveitarfélaginu til varðveislu.

Sveitarstjórnir sveitarfélaganna kjósa sameiginlega þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara. Kjörstjórnir þær sem kosnar voru í upphafi yfirstandandi kjörtímabils, skv. 14. gr. laga nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórnar, skulu vera undirkjörstjórnir í hvoru sveitarfélagi fyrir sig við sveitarstjórnarkosningar.

Innviðaráðuneytinu, 7. apríl 2022.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.
Guðni Geir Einarsson.