Fara í efni

Auglýst er eftir byggingaraðilum

Fréttir

Sameinað sveitarfélag Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps og Leigufélagið Bríet stefna á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Þórshöfn og auglýsa því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á drifa@briet.is eða valdimar@langanesbyggd.is og skal gögnum skilað fyrir þriðjudaginn 16. ágúst 2022.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.
Nánari upplýsingar veita Drífa Valdimarsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (drifa@briet.is), Valdimar Halldórsson verkefnastjóri sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps (valdimar@langanesbyggd.is) og Elmar Erlendsson verkefnastjóri hjá Tryggð byggð (elmar.erlendsson@hms.is). 
Auglýsinguna í heild sinni má einnig sjá hér.