Auglýsing um styrki úr Menningarsjóði Langanesbyggðar
13.10.2026
Fréttir
Langanesbyggð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Langanesbyggðar fyrir menningar- og/eða listviðburði í Langanesbyggð.
Styrkhæf verkefni eru þau sem tilgreind eru í 4. grein reglna um Menningarsjóð Langanesbyggðar:
4. Styrkhæf verkefni sem m.a. koma til greina
4.1. Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, svæða, landa eða listgreina.
4.2. Verkefni sem fela í sér frumsköpun á sviði lista.
4.3. Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista.
4.4. Verkefni sem hafa mikil samfélagsleg áhrif.

Menningarsjóður Langanesbyggðar starfar samkvæmt samþykktri Menningarstefnu Langanesbyggðar.
Umsóknum skal skilað á á þar til gerðu eyðublaði á skrifstofu Langanesbyggðar fyrir 1. nóvember 2026 merkt; „Menningarsjóður – styrkumsókn“. Greinargerð um verkefni sem sótt er um styrk til, skal fylgja með í umsókninni.
Nánari upplýsingar um styrki veita sveitarstjóri og skrifstofustjóri Langanesbyggðar í síma 468 1220 eða á langanesbyggd@langanesbyggd.is