Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð Skipulagslýsing – Staðarárvirkjun í Bakkafirði
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2025 að kynna skipulagslýsingu vegna vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 og við nýtt deiliskipulag vegna Staðarárvirkjunar í Bakkafirði.
Arctic Hydro hefur áform um að reisa vatnsaflsvirkjun í Staðará í Bakkafirði. Áætlað uppsett afl virkjunarinnar er 0,99 MW og árleg orkuframleiðsla 6,1 GWh. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi RARIK. Framkvæmdin er í samræmi við tillögur starfshóps á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að aðgerðum til að efla samfélagið í Langanesbyggð. Starfshópurinn taldi litlar virkjanir geta haft góð áhrif á rekstur dreifikerfisins, minnkað töp og styrkt samkeppnisstöðu svæðisins.
Um er að ræða sameiginlega lýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag. Skipulagsgögnin eru aðgengileg hér á heimasíðu Langanesbyggðar, á skrifstofu sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmerunum 736/2025 fyrir aðalskipulagsbreytinguna og 737/2025 fyrir deiliskipulagið. Skipulagsgögnin verða aðgengileg frá 30. maí til og með 20. júní 2025.
25025-001-lysing-ask-og-dsk-stadararvirkjun-id-457272-.pdf
Óskað er eftir ábendingum og sjónarmiðum frá almenningi og umsagnaraðilum. Þeim er hægt að koma á framfæri á skipulagsgáttinni undir fyrnefndum málsnúmerum. Einnig er hægt að senda ábendingar á Langanesbyggð, Langanesvegur 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn@langanesbyggd.is
Ábendingar skulu vera skriflegar og merktar „Staðarárvirkjun í Bakkafirði - skipulagslýsing“ og skal nafn sendanda, kennitala og heimilisfang koma fram. Ábendingar verða hafðar til hliðsjónar í skipulagsvinnunni en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti
Björn S. Lárusson
Sveitarstjóri Langanesbyggðar