Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð - Langholt
Skipulagslýsing – Þjónustu- og íbúðasvæði við Langholt
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 að kynna skipulagslýsingu vegna vinnu við deiliskipulag fyrir þjónustu- og íbúðabyggð við Langholt á Þórshöfn.
Helstu viðfangsefni deiliskipulagsins eru skipulag byggingarreita og lóða fyrir íbúðarhúsnæði, fyrirhuguð uppbyggingu á húsnæði björgunarsveitar og ákvarðanir um staðsetningu gatna, stíga, bílastæða og grænna svæða.
Skipulagsgögnin eru aðgengileg hér á heimasíðu Langanesbyggðar, á skrifstofu sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmeri 486/2026. Skipulagsgögnin verða aðgengileg frá 24. apríl til og með 15. maí 2026.
Óskað er eftir ábendingum og sjónarmiðum frá almenningi og umsagnaraðilum. Þeim er hægt að koma á framfæri á skipulagsgáttinni undir fyrrnefndu málsnúmeri. Einnig er hægt að senda ábendingar á Langanesbyggð, Langanesvegur 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn@langanesbyggd.is
Ábendingar skulu vera skriflegar og merktar „Þjónustu- og íbúðasvæði við Langholt“ og skal nafn sendanda, kennitala og heimilisfang koma fram. Ábendingar verða hafðar til hliðsjónar í skipulagsvinnunni en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti. Tegnill á skipulagslýsinguna er hér:
thjonustu-og-ibudarsvaedi-vid-langholt-skipulagslysing-m.pdf
Sveitarstjóri