Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti þann 26. febrúar sl. að auglýsa tillögu að breytingu á eftirfarandi skipulagi ,,Miðsvæði við Fjarðarveg á Þórshöfn” í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin fellst í því að gert er ráð fyrir lóð og byggingareit fyrir fjögurra íbúða raðhús við Miðholt. Íbúðirnar fá númerin Miðholt 20,22,24 og 26. Svæðið tilheyrir opnu svæði Þórshafnar og er á skilgreindu Miðsvæði í Aðalskipulag Langanesbyggðar 2007-2027 þar sem m.a. er gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði. Samhliða þessari breytingu eru gerðar tilfærslur á legu útivistastíga við hina nýju lóð. Að öðru leiti gildir áfram deiliskipulagið frá 30.06.2021.
Breytingartillagan er augýst frá 28. mars til og með 11. maí 2026. Hægt er að skoða breytingartillöguna hér á heimasíðu Langanesbyggðar og á skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 347/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar á skrifstofu langanesbyggðar. .
Þeir aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við Skipulagstillöguna á skipulagsgatt.is undir fyrrnefndu málsnúmeri. Einnig er hægt að senda athugasemdir á skrifstofu sveitarfélagsins, Langanesveg 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn@langanesbyggd.is Athugasemdir skulu vera skriflegar með nafni, kennitölu og heimilisfangi sendanda og merktar ,,Miðholt – deiliskipulagsbreyting“.
lbds-2001d-thorshofn-midsvaedi-2026-03-23-layout3-a3-1-.pdf
Athugsemdir skulu berast í síðasta lagi 11. maí 2026.
Björn S. Lárusson
Sveitarstjóri Langanesbyggðar