Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð

Fréttir

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. janúar 2026 að kynna vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar og vinnslutillögu deiliskipulags vegna Tunguárvirkjunar.
Tunguárvirkjun ehf. hefur áform um að reisa vatnsaflsvirkjun í Tunguá í Þistilfirði með áætlað uppsett afl 2,1 MW og árlega orkuframleiðslu upp á 12 GWst. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi Rarik.
Vinnslutillagan verður aðgengileg hér á heimasíðu Langanesbyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins frá þriðjudeginum 10. febrúar 2026. Einnig er hægt að skoða vinnslutillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmerum 129/2025 og 130/2025.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum vegna skipulagsins. Ábendingar skulu vera skriflegar og merktar ,,Tunguárvirkjun í Þistilfirði - vinnslutillaga“. Þær skal senda á: Langanesbyggð Langanesvegur 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn@langanesbyggd.is. Einnig er hægt að senda inn ábendingar á skipulagsgatt.is undir fyrrnefndum málsnúmerum.
Frestur til að skila inn ábendingum er til og með mánudagsins 23. febrúar 2026. Ábendingar verða hafðar til hliðsjónar í skipulagsvinnunni en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti.

Tenglar á vinnslutillögurnar eru hér fyrir neðan:
06-17128-001-dsk-tunguarvirkjun-uppdr-id-479855-3-.pdf
06.1-17128-001-askbr-tunguarvirkjun-id-479150-.pdf
06.2-17128-001-dsk-tunguarvirkjun-grg-id-491835-.pdf