Fara í efni

Atvinna í boði - sumarafleysingar á Nausti

Fréttir

Við á hjúkrunarheimilinu Nausti óskum eftir að ráða til okkar sumarafleysingastarfsmenn
í eftirfarandi störf: 

  • Aðhlynningu
  • Ræstingar
  • Eldhús

Naust er hjúkrunar- og dvalarheimili með rými fyrir 14 íbúa.
Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.

Hæfniskröfur:
Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri
Jákvæðni og vinnusemi
Sjálfstæði og stundvísi
Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki
Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 17 apríl 2023
Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is