Fara í efni

Atvinna í boði-sumarafleysing í heimaþjónustu

Fréttir

Starfsmann vantar í afleysingu í heimaþjónustuna á Þórshöfn tímabilið 3 júlí – 11 ágúst n.k.
Starfið felst í því að starfa á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja og/eða fatlaðra. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðinga svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.
Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar gefur Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri Nausts í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is