Fara í efni

Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2025

Fréttir

Ársreikningur sveitarfélagins var lagður fram til síðari umræðu í dag og samþykktur þar. Í bókun með samþykktinni segir m.a.:
Sveitarstjórn samþykkir ársreikninginn fyrir árið 2025 og felur sveitarstjóra að senda hann til birtingar. Samstæðu reikningi Langanesbyggðar var lokað með rekstrarafgang upp á tæpar 122 milljónir. Af þeim afgangi voru langtímaskuldir upp á 78 milljónir greiddar. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum á árinu 2025 voru 370 milljónir. Lausafé um áramót var 47 milljónir. Vaxtagreiðslur ársins voru 54 milljónir eða 9 milljónum minna en á fyrra ári.
Tengill á ársreikninginn er hér: arsreikningur-langanesbyggdar-2025-allar-undirskriftir.pdf