Ársreikningur Langanesbyggðar 2024 samþykktur
Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2024 var samþykktur við aðra umræðu í sveitarstjórn 15. maí s.l. Sveitarstjórn bókaði eftirfarandi við afgreiðslu ársreikningsins.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir ársreikning fyrir árið 2024 ásamt samstæðureikningi og endurskoðunarskýrslu og felur sveitarstjóra að senda til birtingar ásamt því að birta hann á heimasíðu sveitarfélagsins. Samstæðu reikningur Langanesbyggðar er lokað með rekstrarafgang upp á 242 milljónir á A og B hluta. Af þeim afgangi voru langtímaskuldir upp á 76 milljónir greiddar. Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum á árinu 2024 fyrir 436 milljónir og lausafé um áramót var einungis upp á 26 milljónir. Vaxtagreiðslur ársins voru 63 milljónir og hafa lækkað um 17% frá fyrra ári og 37% frá árinu 2022.
Ársreikningurinn sýnir sterka stöðu sveitastjórð um síðustu áramót. Mikil tiltekt hefur verið í eignasjóði þar sem fyrirtæki hafa verið lögð niður eða þau flutt í A sjóð þar sem möguleiki var á því. Fjárfestingar á síðasta ári voru miklar, einkum í innviðum sveitarsfélagsins eins og endurbætur á Nausti, bygging sorpmóttökustöðvar hélt áram, búið var til bílastæði norðan Kjörbúðarinnar þar sem ætlunin er að komið verði fyrir hleðslustöðvum, endurbætur á höfninni og athafnasavæðis hafnarinnar hófust og Auk fjölmargra smærri verkefna sem komar voru á tíma í viðhaldi. Hlekkur á ársreikninginn er hér fyrir neðan: