Fara í efni

Annar fundur með íbúum vegna sameiningarviðræðna

Fréttir

Annar fundur með íbúum um sameiningarmál fer fram í dag, miðvikudaginn 12. janúar kl. 17:00 til 18.30.
Efni fundarins er:
Kynning á fjármálum og umræða um þjónustu mögulega sameinaðs sveitarfélags.

Ráðgjafar um sameiningarferlið munu tengjast um fjarfundabúnað. Íbúar geta valið um að mæta í stjórnsýsluhúsið á Þórshöfn, í Svalbarðsskóla, á Skólagötu 5 á Bakkafirði (gamli grunnskólinn), eða fylgst með heima. Nefndarmenn verða í Svalbarðsskóla, stjórnsýsluhúsi Langanesbyggðar og í fjarfundarsambandi. 
Slóð inn á útsendingu frá fundinum er hér
Auk fundanna er búið að opna fyrir rafrænt samráðskerfi á menti.com þar sem allir íbúar geta komið ábendingum sínum og spurningum á framfæri. Til að taka þátt þarf að hafa síma, snjalltæki eða tölvu og fara inn á síðuna menti.com. Slá þar inn töluröðin 6947 3725og þá opnast samráðskerfið.

Einnig er hægt að fara inn á samráðskerfið með því að elta á þessa slóð:
https://www.menti.com/pnkytegmv7

Samstarfsnefndin um sameiningarmál hvetur íbúa til þess að kynna sér málin og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Síðasti fundurinn í þessari fundarröð verður á morgun, fimmtudaginn 13. janúar kl. 17:30 - 19:00
Efni fundarins á morgun er:
Stjórnskipulag sameinaðs sveitarfélags og sameiginleg hagsmunamál gagnvart ríkinu.