Fara í efni

Aðventustund í Þórshafnarkirkju

Fréttir
Þórshafnarkirkja (ljósm. Gréta Bergrún)
Þórshafnarkirkja (ljósm. Gréta Bergrún)
Aðventustund verður í Þórshafnarkirkju,
Aðventustund verður í Þórshafnarkirkju, þriðjudaginn 27. nóvember n.k. kl. 17.00.
 
Grunnskólinn  á Þórshöfn og kirkjustarfið leiða saman hesta sína í vandaðri dagskrá í tali og tónum.  Louise Price stýrir kór kirkjunnar  og öðrum  tónlistarflutningi  og sóknarprestur flytur hugvekju. Þau leikskólabörn sem ætla að syngja jólalag eru beðin um að mæta aðeins fyrr. 
 
Kaffi og kakó á boðstólum eftir samveruna í safnaðarheimilinu.

Hlökkum til að sjá ykkur, Grunnskólinn, tónlistarskólinn  og sóknarnefnd.