Fara í efni

Sundlaug/Íþróttamiðstöð

Íþróttamiðstöðin á Þórshöfn er við Langanesveg 18, við hliðina á Grunnskólanum á Þórshöfn. Þar er leikvöllur og sparkvöllur. Í íþróttamiðstöðinni er glæsileg innisundlaug þar sem tilvalið er að taka smá sundsprett og ylja sér svo í heitu pottunum eða í gufu. Einnig er þar vel búinn líkamsræktarsalur sem hægt er að kaupa staka tíma í.