Fara í efni

Sauðaneshús - Safn

Sauðanes á Langanesi fornfrægur kirkjustaður sem er 7 km norðan við Þórshöfn. Á Sauðanesi er búið að breyta gamla prestsetrinu í safn og var það formlega opnað sem slíkt árið 2003. Sr. Vigfús Sigurðsson sem þjónaði á Sauðanesi lét reisa prestsetrið fyrir sig á árunum 1879-1881. Björgólfur snikkari og Sveinn múrsmiður Brynjólfssynir sáu um verkið og var húsið eitt af örfáum steinhlöðnum húsum á landinu. Í útidyraumbúnað og hurðir var notaður stór tekkbolur sem rak á land við Langanes. Á safninu eru til sýnis ýmsir sögufrægir munir frá Langanesi og nágrenni og eftir skoðunarferð um safnið er hægt að setjast niður og fá sér vöfflur og kakó eða kaffi. Opið er daglega yfir sumartímann.