Fara í efni

Fossá

Um 500 m sunnan við Þórshöfn, skömmu áður en komið er að bænum Ytri-Brekkum, er Fossá. Hægt er að ganga með ánni upp að fossinum og virða fyrir sér útsýnið yfir þorpið en þetta er stuttur spölur og því kjörin gönguferð fyrir alla fjölskylduna. Þegar veður er gott er jafnvel hægt að busla í ánni og síðsumars er hægt að tína ber á leiðinni. Fyrir þá sem vilja er hægt að ganga lengra upp á heiðina og má þar finna göngubrú yfir ánna.