| Forsíða | ||
| Stjórnsýsla | ||
| Um Langanesbyggð | ||
| Stofnanir | ||
| Atvinnulíf og þjónusta | ||
| Almannavarnir | ||
| Áhugaverðar síður | ||
| Ljósmyndasafn | ||
| Póstþjónn | ||
| Um vefinn | ||
| English | ||
Stjórnsýsla
欢迎党

Skráningarlistar vegna þorrablóts á Þórshöfn, laugardaginn 11. febrúar 2012 hafa nú verið lagðir fram í Samkaup og Grillskálann. Listarnir verða fjarlægðir fimmtudaginn 9. febrúar kl. 14.00 og þá er eins gott að vera búinn að skrá sig.
Forsala á miðum verður í félagsheimilinu Þórsveri laugardaginn 11. febrúar frá kl. 12-14.
Miðaverð er 5.500 kr. fyrir blót og ball en 2.000 kr. fyrir ball.
Það má enginn missa af þessu þorrablóti. Óborganleg skemmtun. Unaðslegur matur.
Þorrablótsnefndin 2012
Bifreiðaskoðun Frumherja á Norðausturlandi
Frumherji hefur auglýst bifreiðaskoðunardaga á stöðvum sínum á Norðausturlandi árið 2012.
Fyrsta skoðun á Þórshöfn er 7. febrúar nk. Tímapantanir fyrir skoðun á Þórshöfn eru hjá SF bílaþjónustu í síma 618-1550.
SF bílaþjónusta vill einnig koma eftirfarandi á framfæri:
Viðskiptavinir SF bílaþjónustu sem eiga dekk á verkstæðinu eru vinsamlega beðnir um að sækja þau sem fyrst. Engin ábyrgð er tekin á dekkjum sem skilin hafa verið eftir.
Zumba á Þórshöfn
Nú stendur til boða að stunda Zumba á Þórshöfn en Zumba er skemmtileg blanda af dansi og líkamsrækt. Engrar kunnáttu er krafist, hvorki í dansi né líkamsrækt, heldur eru notuð einföld skref og rútínur, byggðar upp á einfaldan hátt sem ættu að henta öllum!
Zumba hefst í íþróttahúsinu á Þórshöfn, þriðjudaginn 7. febrúar. Um er að ræða 10 tíma námskeið, sem kennt er 2 sinnum í viku frá kl. 20-21 á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.
Kennari er Anna Rún Kristjánsdóttir, B.Sc. í íþróttafræði en hún er m.a. með 15 ára reynslu í salsa.
Skráning í arkzumba@gmail.com
Námskeiðið kostar 10.000 krónur og er fyrir 20 ára og eldri.
Gjaldið greiðist inn á reikning 0302-13-000224, kt. 090981-3909
Skráning verður staðfest með tölvupósti um leið og greiðsla er móttekin.

Fimbulfjör á þorrablóti
Hundrað og tuttugu manns sóttu þorrablót Grunnskólans á Þórshöfn s.l. fimmtudagskvöld þar sem börn og fullorðnir skemmtu sér saman. Óhætt er að segja að Þorramaturinn hafi runnið ljúflega niður við söng, glens og gaman.
Nemendur slógu í gegn með fjölbreyttum skemmtiatriðum og greinilegt að söngmenningin blómstrar í skólanum. Líney stjórnaði kór yngri nemenda sem sungu um hann Snorra, Þorraþrælinn og fleiri lög tengd Þorranum. Sjötti og sjöundi bekkur sá um kynninguna og stóðu Margrét og Bergþóra sig vel í hlutverkum kynna auk þess sem Anna María flutti fróðlegan pistil um Þorrann.
Áttundi bekkur reyndi á leikræna tilburði foreldra sem voru greinilega sumir að stíga sín fyrstu skref á sviði. Níundi bekkur bauð kennurum og foreldrum upp á stóladans og tíundi bekkur stóð fyrir eyðibýlagetraun þar sem Nornirnar þrjár báru sigur úr býtum. Atriði kennara þar sem þorrablótsgestir spreyttu sig á því að stökkva yfir sauðalegg og reisa horgemling vakti mikla kátínu og rúsínan í pylsuendanum var svo óborganlegt atriði foreldra þar sem Vúdúdúkkur voru í aðalhlutverki.
Námskeið í kennslu, þjálfun og hreyfingu fatlaðra
EIPET SPORT-námskeið verður haldið á Þórshöfn og Húsavík dagana 17. og 18. febrúar nk. Námskeiðið er ætlað kennurum og öðrum sem eru áhugasamir um kennslu, þjálfun og hreyfingu fatlaðra. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér.
Skráning og frekari upplýsingar í netföngunum annak@sisport.is og helena@hac.is.
Rafmagnstruflanir í nótt
RARIK á Norðurlandi vill koma eftirfarandi á framfæri til raforkunotenda í Norður-Þingeyjarsýslu:
Búast má við truflunum frá miðnætti til klukkan sex í nótt vegna fullnaðarviðgerðar á stofnlínu Landsnets.
Rafmagnslaust verður í Kelduhverfi og Öxarfirði.
RARIK Norðurlandi
Hópatferli andarunga
Samtök náttúrustofa standa fyrir fræðsluerindi um hópatferli andarunga fimmtudaginn 26. janúar nk. Fylgjast má með erindinu í Menntasetrinu á Þórshöfn í fjarfundarbúnaði.
nánar
Með blóti vér blíðka þurfum hann

Þá er þorrinn genginn í garð. Loksins, myndi kannski einhver segja, enda er þorrinn gósentíð þeirra sem hafa þörf fyrir að slafra í sig vel geymdum mat og drekka með því helst helling af brennivíni. Aðrir, hugsanlega fleiri, þreyja hinsvegar þorrann og geta vart beðið eftir að þessi tíð súrmetis og ammoníaks líði og við taki Góan með vorinu innan seilingar. Karlpeningurinn hugsar sér gott til glóðarinnar einmitt í dag, bóndadag, enda má ætla að karlmenn flestir komi heim úr vinnu í dag í ilmandi hreingerð hús, í faðm snyrtilegra og vel til hafðra eiginkvenna, heim til prúðra og kurteisra barna, brakandi steik í ofninum, kaldur á kantinum og leikurinn í sjónvarpinu. Áfram Ísland! Lifi karlmenn!
Annars ætti enginn að reyna að hafa um þorrann fátækleg orð þegar um þessa fornu tíð hefur fyrir löngu verið sagt það sem segja þarf:
nánar
Fleiri fréttir
Viðburðadagatal
|








