Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Kátir dagar 2010


Fjölskylduhátíðin Kátir dagar í Langanesbyggð verður haldin dagana 13. - 18. júlí næstkomandi. Þá verður kitlandi kæti á Þórshöfn, Þistilfirði og Bakkafirði, svo enginn verður svikinn af að heimsækja svæðið.
Fyrsta útgáfa dagskrárinnar er hér, en hún er enn að breytast og batna svo betra er að fylgjast reglulega með.

Túpílakatónleikar í kvöld

Í kvöld, fimmtudaginn 15. júlí kl.21:00 heldur þingeyska tríóið Túpílakar tónleika í Þórsveri á Þórshöfn.
Tónlist Túpílaka er þjóðlagakennd, allt frá kórlögum og yfir í urrandi poppsmelli. Textarnir eru ýmist skemmtilegt bull, eða hárbeitt þjóðfélagsád...bull. Í bland við grafalvarlegheit.
Tríóið inniheldur þau Margréti Sverrisdóttur leikkonu, Sigurð Illugason málara og Odd Bjarna Þorkelsson ljótan hálfvita með meiru.
Myndin hér til hliðar er ekki úr prjónablaði, heldur eru þetta Túpílakar huggulegir á hafnargarði einhvers staðar á landinum.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur, veitingasala á staðnum.



Listaverk prýða bæinn

Þetta glaðlega tjald vakti mikla athygli og gleði þegar það var sett upp við innganginn í skrúðgarðinn á Þórshöfn í gær. Nærri lá við að umerðaröngþveíti skapaðist á Langanesveginum. En hvað skyldi vera hér á seyði?
Krakkarnir í vinnuskóla Langanesbyggðar hafa undanfarna daga unnið að listsköpun með listamanninum Georg Hollanders. Afraksturinn er að koma í ljós hér og þar í skrúðgarðinum og mun gleðja augu okkar næstu daga. Hráefnið í listaverkin kemur allt af haugunum, eins og það er kallað. Þetta er semsagt allt endurvinnsla þar sem "ónýtum" hlutum er breytt í falleg og skemmtilegt listaverk og innsetningar með hugmyndaflugi og afgangsmálningu.


Ef húsagrunnar og veggjabrot gætu talað

Kátir dagar hófust á þriðjudagskvöldið með því að kátudagafáni var dreginn að húni á Bakkafirði og dagarnir þar með formlega settir. Í kjölfarið fylgdu frábærir tónleikar K-tríós sem léku ljúfan djass af mikilli gleði og innlifun við ómælda ánægju tónleikagesta í skólanum á Bakkafirði.
Í dag hefjast viðburðirnir hver af öðrum og fyrst ber að nefna fyrirlestur í Sauðaneshúsi á Langanesi um þorpið á Skálum.
Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur flytur erindið "Ef húsgrunnar og veggjabrot gætu talað: Miðlun sögu á Skálum á Langanesi. Stiklað verður á stóru í sögu þorpsins á Skálum, þar sem m. a. útgerðarhættir, strandvarðstöðvar hersins og samgöngur koma við sögu.
Að fyrirlestrinum loknum verður farið í skoðunarferð út að Skálum með leiðsögn Sifjar. Hægt er að panta far hjá Indriða Kristjánssyni í síma 892-9776.


Dönsum af hjartans lyst

Á föstudagskvöldið næsta, þann 16. júlí verður haldið gömludansaball á Þórshöfn. Hljómsveit Einars Guðmundssonar leikur fyrir dansi, en hljómsveitin kemur frá Félagi harmonikuunnenda í Eyjafirði.
Einar segir að fólk leggi svolítið mismunandi skilning í orðin gömlu dansar; sumir telja það vera bara skottís, ræl, marsurka, Vínarkrus, vals og polka. Aðrir telja það vera alla dansa sem fólk getur dansað með haldi og hljómsveitin verður með breitt prógram þar sem fólk getur dansað með haldi. Það er því hægt að dansa tjútt og sving, jive, cha, cha, cha og margt fleira skemmtilegt.
Hljómsveitin flytur meðal annars
lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng og líka Hljómsveit Ingimars Eydal svo eitthvað sé nefnt.
Allir sem hafa gaman af að dansa munu eflaust nýta sér þetta góða tækifæri með góðri danshljómsveit til að rifja upp dansspor og fá sér snúning.



Ekki opið yfir Hólaheiði um Káta daga

Vonir stóðu til að leyfð yrði umferð yfir Hólaheiði um Kátudagahelgina þó ljóst væri að verkinu yrði ekki lokið þá. Nú liggur fyrir að svo verður ekki. Þannig stendur á verki að það er ekki hægt án mikils kostnaðar og tafa. Og jafnframt liggur fyrir að vegurinn verður ekki opnaður fyrir verslunarmannahelgi eins og lengi stóð til, heldur einhvern tímann í ágúst.
Þetta eru vissuleg vonbrigði fyrir íbúa og gesti þeirra. En rétt er að geta þess að Öxarfjarðarheiði var hefluð í gær og sömuleiðis hefur veginum út fyrir Sléttu verið gert eitthvað til góða svo hugsanlega hefur hann batnað.
Til Þórshafnar úr austri eru vegir með venjubundnum hætti ennþá en fólk er þar eins og annarsstaðar beðið að aka varlega og sérstaklega ef fólk er ekki vant akstri á malarvegum. Enginn ætti samt að hika við að heimsækja Langanesbyggð og nágrenni og njóta fjölbreyttrar dagskrár á Kátum dögum.


Samkaup tekur þátt í Kátum dögum

Verslunin Samkaup á Þórshöfn mun bjóða börnum upp á fría andlitsmálningu föstudaginn 16. júlí milli kl 13:00 og 16:00 og laugardaginn 17. júlí frá  kl 11:00 og 13:00.
Þá mun Samkaup einnig bjóða börnum upp á íspinna laugardaginn 17. júlí.

Í tilefni Kátra daga mun Samkaup vera með fjölda tilboða s.s. á grillkjöti og gosi. Opnunartíminn alla virka daga er frá 9:30 - 18:00.

Opnunartími Samkaups  um Káta daga verður:

Föstudagur   16. júlí kl. 09:30 – 20:00 (ekki frá 10:00 eins og misritaðist í Kátudagskránni)

Laugardagur 17. .júlí kl. 10:00 – 16:00

Sunnudagur  18. júlí kl. 11:00 – 13:00
Að lokum má geta þess að Samkaup er góður styrktaraðili hátíðarinnar.




Gönguferðir um helgina

Um næstu helgi, á Kátum dögum, verða tvær göngur í Langanesbyggð og nágrenni.
Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir göngu á Gunnólfsvíkurfjall á Langanesi föstudaginn 16. júlí nk. Safnast verður saman við veginn á fjallið austarlega á Brekknaheiði kl. 16:00. Tveimur tímum seinna eða kl. 18:00 mun fróður maður segja fólki frá því sem fyrir augu ber uppi á fjallinu.

Gunnólfsvíkurfjall er einkar tignarlegt þar sem það rís beint úr sjó upp í 719 m hæð og þaðan er ægifagurt útsýni. Í góðu skyggni sést þaðan allt suður til Herðubreiðar og Dyngjufjalla. Á fjallinu er ratsjárstöð.
Sunnudaginn 18. júlí verður gengið með leiðsögn um söguslóðir Höllu og heiðarbýlisins á Melrakkasléttu. Gengið verður að Hrauntanga og komið við í Kvíaborgum. Mæting við sæluhúsið á Öxarfjarðarheiði kl. 9:00.
Gangan er hluti af dagskrá sem tileinkuð er ævi og verkum Jóns Trausta.




Fjölbreyttur útimarkaður

Það verður mikill og fjölbreyttur markaður í skrúðgarðinum á Þórshöfn laugardaginn 17. júlí. Fréttir hafa borist af því að til sölu verði meðal annars snyrtivörur, fánar og fatnaður nýr og notaður, vinnuvettlingar, tölur úr hornum og tré, heimaunnar prjónavörur og ýmis konar handverk, listmunir, norsk rósamálun, bros-skilti, skart frá netskart.com, peysur frá asdesign.is og fleira.
Þá er ótalið allt matarkyn, til dæmis; sykurbráð og sælgæti, kaffi og kökur, kleinur og ástarpungar, soðið brauð, flatbrauð með silungi, heimatilbúinn mysingur, alþjóðleg matarkynning og fleira.
Síðast en ekki síst verður Ísfélag Vestmannaeyja með kynningu á ýmsum spennandi sjávarréttum s.s. úr léttsöltuðum þorski, kúffiski og makríl. Hægt verður að smakka súpu og létta rétti. Að þessu standa þau Kjartan Marinó Kjartansson og Anna Soffía Ásgeirsdóttir matreiðslumenn, en þetta er sjöunda árið sem Kjartan kemur og eldar fyrir útimarkaðinn og segir að þetta sé alltaf jafn gaman.


Ljósmyndamaraþon Kátra daga og Canon

LjLjósmyndamaraþonið fer fram föstudaginn 16. júlí frá kl. 12:00 – 15:00. Fyrir unga sem aldna. Það er haldið með stuðningi Sense, dreifingaraðila Canon neytendavara á Íslandi.
Þátttakendur mæta í íþróttamiðstöðina á Þórshöfn kl. 12:00, skrá sig til leiks og fá uppgefin verkefni. Þeir hafa síðan þrjá tíma til að taka umbeðnar myndir. Myndunum skal skilað í íþróttamiðstöðina á milli 14:00 og 15:00. Skila þarf myndunum á minniskorti (sem þú færð aftur) eða koma með myndavélarsnúru.
Vinningar í maraþoninu eru ekki af verri endanum.
1. verðlaun, Canon Powershot A490 myndavél
2. verðlaun, Canon PIXMA MP490 fjölnota prentari
3. verðlaun, Canon PIXMA iP2700 A4 ljósmyndaprentari
Verðlaunamyndirnar verða til sýnis í íþróttamiðstöðinni á laugardag og sunnudag.
Umsjónarmaður maraþonsins er Kerly Ilves frá Eistlandi, en hún er hér á Þórshöfn í hópi SEEDs-liða sem planta trjám og sinna fleiri verkefnum í hvaða veðri sem er. Kerly er menntaður og starfandi ljósmyndari í heimalandi sínu og hefur heimasíðuna www.kerlyilves.com.
Ungir og gamlir ættu að spreyta sig í skemmtilegu ljósmyndamaraþoni.


Myndlist á Kátum dögum

Gulla SigurðardóttirÁhugafólk um myndlist og aðrar sjónlistir getur fundið margt við sitt hæfi á Kátum dögum.
Fyrsta List-farfuglaheimilið á Íslandi var opnað í vor - Art Hostel Ytra Lón á Langanesi. Farfuglaheimilið var í vetur í samstarfi við Myndlistaskólann á Akureyri. 15 nemendur í Fagurlistadeild unnu að verkefninu „Outer Space Art Place“ undir leiðsögn Árna Árnasonar hönnuðar. Afrakstur þessarar vinnu er til sýnis á Ytra Lóni.
Auk þessa má sjá sýningu Aðalheiðar Eysteinsdóttir,  „Síðbúinn sauðburður“  í sýningarröðinni „Réttardagur 50 sýninga röð“, Henk Blekkenhorst sýnir vatnslitamyndir af Langanesi og Clara Hermans frá Belgíu sýnir ljósmyndir af svæðinu. Leikskólabörn á Þórshöfn eiga þar einnig verk. Sýningarnar eru opnar frá 10 – 22 alla daga til 31. ágúst, auk þess sem kaffihús er opið síðdegis alla daga.
Guðrún Jónína Magnúsdóttir, eða Ninna sýnir og selur málverk, handverk og bækur eftir sjálfa sig í Grunnskólanum á Þórshöfn. Ninna setti upp fallega sýningu í fyrra og heimsækir okkur nú aftur.
Á veitingastaðnum Eyrinni sýnir og selur Gulla Sigurðardóttir myndir af hestum, olíumálverk á striga. Gulla er fædd 1969 í Ólafsfirði og útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1991.
Í Milljónahöllinni við Bakkaveg á Þórshöfn verður mögnuð stemming, málverk og fliera. Því lofa þeir Eyþór Atli, Hallgrímur Ingólfs, Jón Ingi og allir hinir.
Þá má geta þess að í íþróttahúsinu laugardag og sunnudag  má sjá verðlaunamyndir úr ljósmyndamaraþoni Kátra daga sem haldið verður föstudaginn 16. júlí.


K tríó telur í Káta daga

K tríóKátir dagar hefjast um miðjan júlí í Langanesbyggð og nágrenni.
Upptaktinn að Kátum dögum slá piltarnir í K-tríói, en þeir halda jazztónleika í skólanum á Bakkafirði þriðjudagskvöldið 13. júlí.
K tríó var stofnað í janúar 2008 og hefur spilað mikið saman síðan, meðal annars á Jazzhátíð Reykjavíkur, Innipúka 2009 og öðrum viðburðum á Íslandi. Um miðjan september 2008 tók K tríó þátt í Young Nordic Jazz Comets keppninni. Tríóið stóð uppi sem sigurvegari. Í framhaldi af því spilaði tríóið stuttan norðurlandatúr meðal annars á Nasjonal Jazzscene í Osló, Rytmihäiriöklubi Helsinki, Christianshavns Beboerhus í Kaupmannahöfn, Mariehamn Jazzfestival Álandseyjum og Ylläs Jass og blús.
Í byrjun árs 2009 gaf K tríó út sína fyrstu plötu. Platan fékk mjög góða dóma, m.a. 4 1/2 stjörnu í Morgunblaðinu. Síðasta sumar spilaði K tríó á North Sea Jazz í Rotterdam (stærstu innanhús jazzhátíð í Evrópu). Tríóið tók upp aðra plötu sína í desember 2009 og á hún að koma út í byrjun sumars.


Skreytum hús á Kátum dögum !

Nú eru nákvæmlega tvær vikur þangað til Kátir dagar hefjast og dagskráin að fara í prentun. Kynningarbæklingur verður borinn í öll hús eftir næstu helgi. Drög að dagskránni eru líka komin hér fyrir ofan. Vonandi finna þar allir eitthvað við sitt hæfi.
Á  Kátum dögum í fyrra voru íbúar hvattir til að lífga upp á umhverfi sitt með því að skreyta hús og næsta nágrenni í ákveðnum litum eftir hverfum.  Þetta gaf góða raun og mátti sjá mikið hugmyndaflug í skreytingum og skemmtilegar útfærslur.
Nú skulum við rifja upp skiptingu og liti.
Bakkafjörður :
©      Hraungerði, Steinholt, Brekkustígur, Hafnargata og Hafnartangi - BLEIKT
©      Bæjarás, Miðvangur, Skólagata, Kötlunesvegur - BLÁTT
Sveitin:
©      APPELSÍNUGULT eða GULT
Þórshöfn:
©      Ásgarður að Hafnarlæk  - GULT
©      Frá Hafnarlæk að Hafnarvegi. – RAUTT
©      Langnesvegur – BLÁTT
©      Miðholt og Austurvegur- GRÆNT
©      Vesturvegur og Bakkavegur – FJÓLUBLÁTT eða BLÁTT
©      Pálmholt og Langholt – BLEIKT
Sem dæmi um skreytingar má nefna að mála ýmsa hluti, nota blöðrur, borða, fána, eða ýmsa hluti í réttum lit, hengja eitthvað á ljósastaura. Annars er um að gera að láta hugmyndaflugið njóta sín!


Útkall vegna viðburða í dagskrá Kátra daga

Nú eru tæplega fimm vikur í Káta daga í Langanesbyggð og nágrenni, fjölskylduhátíðina sem stefnir í að verða fjölbreytt og skemmtileg. Ýmsir viðburðir og atriði tínast smátt og smátt inn á dagskrá hátíðarinnar.
En nú líður að lokaútkalli vegna viðburða á dagskrána. Þann 23. júní fer dagskráin í prentun og þá þurfa allir að vera búnir að láta vita hvað þeir ætla að gera, hvar og hvenær. Sendið línu á netfangið halldora@langanesbyggd.is eða hringið í síma 468-1220 / 892-8202 ef þið viljið vera með opið hús í fyrirtæki, lítinn eða stóran viðburð, kynningu, þjónustu eða annað sem hugmyndaflugið býður. Þessari dagskrá verður dreift í miklu upplagi á Norðurlandi svo það borgar sig að vera með í henni. Engin hugmynd er svo lítil eða ómerkileg að ekki megi skoða hana betur.



Undirbúningur fyrir Káta daga í júlí

Undirbúningsnefnd fyrir Káta daga heldur reglulega fundi og allt stefnir í káta og kitlandi hátíð 15. - 18. júlí í Langanesbyggð. Gengið hefur verið frá flestum viðburðum á vegum nefndarinnar, en einnig eru einstaklingar, félög og stofnanir byrjuð að tilkynna þátttöku með ýmsa viðburði.
Haldið verður dúndrandi gömludansaball með hljómsveit frá Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð og kvöldið eftir ætlar sunnlenska sveitin Skítamórall og tæta og trylla mannskapinn. Þá verður dansað á Eyrinni að venju.
Tvær gönguferðir verða farnar, önnur á Gunnólfsvíkurfjall en hin á Öxarfjarðarheiði, í tengslum við dagskrá um Jón Trausta. Leikhópurinn Lotta kemur með barnaleikrituð um Hans klaufa og ævintýri hans. Fræðsluerindi um þorpið á Skálum verður haldið í Sauðaneshúsi og þaðan farið í skoðunarferð út að Skálum. Einnig verður messað í Sauðaneskirkju.
Ein sjónlistarsýning er komin á dagskrá, en auk þess verða útimarkaður og Langanesvíkingur á sínum stað. Nú er auglýst eftir fleiri viðburðum og ætti öflugt kynningarstarf hátíðarinnar að vera hvatning til að vera með.
Einnig vantar káta einstaklinga til starfa, til dæmis tengilið vegna Langanesvíkings, en Aflraunafélag Akureyrar kemur og framkvæmir keppnina. Hafið samband í netfangið halldora@langanesbyggd.is eða í síma 892-8202 ef þið viljið vera með.                                    Mynd: Gréta Bergrún


1

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is