Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Gestabók


Gestabók Langanesbyggðar 


Skráning í gestabók



Frá Víði

Hæ ég kíkti við og langar að kasta kveðju á alla íbúa í Langanesbyggð.

KV Víðir Már Hermannsson




Gleðilegt ár öllsömul

Brottfluttir sem heimabúandi og takk fyrir öll gömlu :)

Sérstök kveðja til Dóra Dór, svona á að framkvæma góðar hugdettur, og svona flinkur að baka líka ;)

Kveðja Tobba Þorfinns




Ólafur Tryggvasson

Ég óska öllum á þórshöfn Gleðilegt nýtt Ár

Og takk fyrir gömlu árin  Kveðja Ólafur Tryggvason og Helga Halldósdóttir

Olitryggva@simnet.is




Jólakveðja frá vefstjóra og fjölskyldu

24 desember 2008
Vefstjóri sendir öllum íbúum Langanesbyggðar kærar jólakveðjur með þökk fyrir samtarfið á árinu.

Sjá kort.




Vetrarfagnaður 25 okt.

Kæru Þórshafnarbúar nær og fjær !

Ég tek undir orð Ölvers varðandi smá upplyftingu í miðju krepputali.
Undirbúningsnefndin hlýtur að skila frábærri skemmtun því þau hafa fundað
mánaðarlega síðan í desember 2007. Enda er Ölver formaður nefndarinnar.
Kvæðið Bjartsýni á vel við um þessar mundir:

Þótt maður sé í flagi
þarf maður ekki að láta
eins og naut í flagi.

Taktu klárinn frá.
Tylltu þér á kerruna.
Kveiktu þér í rettu.

Hann styttir upp í haust.
höf:  DS

Sjáumst á laugardaginn.
Oddný Á.




Góðan daginn öllsömul.

18 okt.2008

Mikið óskaplega er gaman að opna blöð og vefmiðla.  Allstaðar eru myndir af Þórshafnarbúum við störf sín, geislandi af ánægju og af hinu mikla öryggi sem umvefur hinar nyrstu byggðir nú um stundir.   Nú eru landsbyggðarmenn, og þó einkum og sér í lagi Þórshafnarbúar, öfundsverðir miðað við hina þjáðu borgarbúa, sem margir hverjir eru búnir að tapa milljónum  í einhverjum misjöfnum bankastofnunum. Greyin, alveg orðnir blankir.

Nú tel ég vera sóknarfæri fyrir Norðaustur hornið að til dæmis opna sjúkrahús fyrir landsmenn  í blokkinni á Raufarhöfn(er blokkin ekki tóm hvort sem er ) stofna  háskóla á  Svalbarði og stofna þing á Hóli (þar var jú einu sinni þingmaður). Þetta ætti ekki að vera neitt vandamál enda sparisjóðurinn á  Þórshöfn svo fullur af peningum að nýja álklæðningin er farin að gapa frá segja mér kunnugir.   

Ég er sannfærður um að ef Ingófur Arnarson væri að koma  núna til að nema land  þá myndu öndvegissúlur hans þjóta eins og 200 hestafla jetski meðfram Suðurlandi, Vesturlandi  og Vestfjörðum taka 90° beygju við Horn og þjóta með Norðurlandi og rakleitt inn inn í Þistilfjörð þar sem Ingólfur myndi  svo finna þær. 

En nóg um þessa miklu möguleika sem Norðaustur hornið á til þess að verða höfuðstaður landsins.

Sláturhúsballið er að skella á og nú gefst Þórshafnarbúum kostur á því að upplifa alvöru kreppu á eigin skinni og koma til Reykjavíkur á Sláturhúsballið Það verður reyndar engin kreppa á ballinu.  Þegar til Reykjavíkur er komið munu menn kannski sjá tötrum klætt fólk í löngum biðröðum fyrir framan Mæðrastyrksnefnd með fötur í höndum að bíða eftir hveiti í aðra og rúgmjöli í hina.  Einnig mætti kannski sjá rykfallna einkaþotu sem stendur ferðbúin að öllu leiti nema því að eigandinn á ekki fyrir eldsneyti. Og ef vel er að gáð þá mætti kannski sjá eigandann vera að safna dósum við Kringlumýrarbrautina til að geta fjármagnað eldsneytiskaupin.  Að mínu mati er þetta eitthvað sem hinir kreppufríu  Þórshafnarbúar ættu ekki að láta fram hjá sér fara.  Þetta tækifæri er núna en ekki seinna.  Seinna gæti kreppan verið búin eða  Reykjavík  jafnvel komin í eyði og þá verður nú ekki margt að sjá hér í borg óttans eins og hún er gjarnan kölluð af Þórshafnarbúum.

´Látið þið nú sjá ykkur á sláturhúsballinu.

Kreppukveðjur Ölver Arnarsson




Sælt veri fólkið

 Gaman að sjá að gestabókin er lifnuð við aftur eftir smá dvala. Ég verð að taka undir lofsönginn um Langanes með hinum brottfluttu. Skrapp "heim" um daginn til að smala í nokkra daga og var það mjög upplífgandi að vanda. Allur vetrarkvíði fauk út í veður og vind í hressandi storminum sem gjarnan leikur um Langanes og sá drungi sem sat fastast skolaðist burt í skemmtilegri hellidembu í Fagranesi. Ég kom því hress og endurnærð aftur hingað til Norðfjarðar, búin að endurnýja þúfnagöngulagið mitt og slétta úr hrukkunum í stormmeðferðinni. Þetta er svo sannarlega himnaríki á jörð, gott að koma aðeins upp úr fjarðaskorunni, viðra sig í víðáttunni og sjá kvöldsólina fyrir norðan. Annars er auðvitað allsstaðar gott að vera með góðu fólki. Hitti reyndar ekki nóg af því fyrir norðan, annaðhvort er að teygjast úr nesinu eða ég að eldast, því ég var svo örmagna á kvöldin að göngum loknum að ég náði ekki að hitta neina aðra en Sauðanesfólkið, nokkra gangnamenn, Tóta, Svölu og Sóleyjux2. Gengur vonandi betur með það næst. Bið að heilsa í bili, sé kannski einhverja ef ég kemst í 140 ára afmælið um helgina:)

Kær kveðja
Þórhalla frá Sauðanesi




Gott að vita

18. sept 2008 
að Ölver er svona vel ættaður. Ég geri auðvitað ekki greinamun á langnesingum og þistlum, var ekki kunnugt um þetta ætterni Ölvers. Get þó upplýst að hann telur sig eskfirðing, en svo sem engin ástæða til að taka mark á því, ég mun með glöðu geði kalla hann langnesing hér eftir, hvað sem þistlar segja. Mig langar að gera athugasemd við vísurnar sem Ölver birti í grein sinni. Ég taldi þessar vísur alltaf öfugmælavísur og tel enn, þær kunna einnig að hafa verið ortar af einhverjum lægri hvötum s.s öfund, tel slíkt mjög líklegt ef ekki er um öfugmæli að ræða.   
    

  Aðeins að öllu alvarlegra efni. Ég tel orðið tímabært að loka bæði Þistilfirði og innanverðum Bakkaflóa fyrir stærri beitningavélaskipum. Það fer að nálgast umhverfisglæp hversu hart er gengið að þessum svæðum núna. Þarna er mikið af smáýsu og smáþorski og með ólíkindum að þessu skuli ekki lokað a.m.k tímabundið.
Bestu kveðjur. Kolli




Kvöldið!

11.september 2008
Þeir standa þétt saman  Langnesingarnir brottfluttu.  Mér til mikillar skelfingar barst Helga Mar liðsauki  úr óvæntri átt alla leið frá sunnan úr Reykjavík.  Eftir að hafa lesið og sannreynt upptalningu Dagnýjar dönskukennara frá Sauðanesi komst ég að því mér til mikils ama að einhver skáld kynnu finnast í framættum Helga. Hvort þau eru eins mörg og Dagný lætur í veðri vaka skal ósagt látið og telja kunnugir að um stórfelldar ýkjur sé að ræða. Einn af þeim er Skírnir Jósafat Eleseusarson Hraunfjörð ættfræðingur, framsóknarmaður og bóndi, gera lítið úr skyldleika Helga við þessi skáld sem Dagný nefnir. En það er allt í lagi, ég finn bara eitthvað annað til að núa honum um nasir. 'Eg er samt  eitthvað svo andlaus eftir þetta áfall með skáldin  í framættum Helga að ég mun nú ganga til rekkju minnar og leggjast þar undir feld og hugsa næsta leik.   Þangað til hafið það sem best.
Minni aftur á Sláturhúsballið fyrsta vetrardag.
Kveðja Ölver



Kæru Langnesingar, Þistlar og Bakkfirðingar.

9. september 2008
Frétti af því að Kolli bróðir hefði skrifað góðan pistil sem reyndist rétt vera.
Las Ölvers pistil sem er líka góður nema þar gætir nokkurs misskilnings varðandi Helga Mar. Framættir hans eru í föðurætt fullar af góðskáldum og kraftaskáldum. Má þar nefna Hallgrím Ásmundsson, Ólaf Indriðason, Pál Ólafsson, Gunnar Gunnarsson og fleiri.
Þessi skáld bjuggu flest á Austurlandi; þó var Gunnar Bakkfirðingur í móðurætt, enda mörg fræg skáld upprunnin þar.
Kveðja
Dagný Marinósdóttir.



Langnesingar (og Þistlar) allra landa!

9.september 2008
Ég finn mig knúinn til að svara kalli og áskorun Ölvers, vinar míns, um að leggja hér orð í belg. Þar kemur margt til. Ég er nýkominn að "heiman", dvaldi nokkra góða daga á Langanesi (og Þistilfiði) fyrir skömmu og ég verð að segja eins og er að mér hefur aldrei fundist þorpið mitt vera fallegra. Það er greinilegur hugur í þorpsbúum og þar iðar allt af lífi, höfnin smekkfull af skipum upp á hvern dag og rúnturinn öflugur sem aldrei fyrr. Verra þótti mér hinsvegar að fá ekki einu sinni marhnút við bryggjuna, nokkuð sem var óbrigðult þegar ég var ungur, rétt eins og sólin kemur upp á hverjum morgni. Kannski er kvótakerfinu um að kenna? Ég vil líka taka undir orð Kolbeins kapteins hér að neðan. Það eru svo sannarlega réttmælt hjá honum að hinar sönnu hetjur eru þær sem voru um kyrrt í "Paradís". Kannski eru þeir samt hugrakkari sem fóru en koma aftur!

Ég treysti mér aftur á móti ekki í þrætur við Ölver um ágæti Langnesinga umfram Þistla............


nánar

Sælir Langnesingar góðir, nær og fjær.

29 ágúst 2008
Því miður hafði ég rétt fyrir mér með lægðina sem þessi gestabók myndi lenda í.  Svipar henni til lægðar þeirrar  sem blessaður Framsóknarflokkurinn er í um þessar mundir.  Sem sagt að kíkja hér inn er svipað eins og að kíkja inn á þingflokksfund hjá Framsókn, þe ákaflega dauflegt. Og því var ég ánægður að sjá Kolbein kaftein ríða á vaðið og svo Tobbu nágrannakonu mína til margra ára koma í kjölfarið.  Þegar svona gæðakona, biður svona fallega, þá er ekki hægt að skorast undan því að skrifa einhverja þvælu hér inn,  til að opna á frekara orðaskak við Helga mar vin minn.
nánar

Góð hugleiðing hjá Kolbeini :)

29. ágúst 2008
 Alltaf gott að vita líka að einhverja langi til að koma hingað aftur. "Heimamenn" eins og hann hljóta alltaf að vera velkomnir.

Kveðja Tobba Þorfinns

P.s. get ekki neitað því að ég sakna tjáskipta hér í gestabókinni, ekki síst "þeirra félaga" Ölvers og Helga :/  




Kæru Þórshafnarbúar

Síðasliðin fösturdag fór litli sæti kisin okkar út að leika  einhver náði honum  og helti yfir hann steinoliuhann var mjög illa leikin og ekki tókst að bjarga lífi hans .það rikir mikil sorg hjá börnunum sem áttu hann þess vegna vil  byðja ykkur um að hafa auga með gæludýrum ykkar  svo þið þurfið ekki að upplifa það sama og við  

Fjölskyldan í langholti 8




Kæru vinir

 Þá fer að koma að því að við förum að hrella ykkur með nærveru okkar, þ.e að leggja línuna uppí fjöruborðið hjá ykkur.
Ég stend þó aðeins sterkar að vígi þetta árið þar sem að ég hef fengið Langnesing í áhöfnina hjá mér til viðbótar við mig og Ölver Guðnason, en Ölver telst nú varla til Langnesinga, það gerir hins vegar Óli Ægir Karlsson, og er hann fyrsti innfæddi Langnesingurinn sem ég hef í minni áhöfn, tími til kominn eftir 20 ára baráttu.
Það gleður mig mjög að hafa hann í áhöfninni. Ég fór á sínum tíma til Grindavíkur á vertíð aðeins 17 ára gamall og hef svo sem aldrei séð eftir því.
Hugurinn er þó alltaf þarna fyrir norðan og geng ég með þá von í brjósti að komast til ykkar aftur. Langanes er í mínum huga dásamlegasti staður á jarðríki og það er ekkert sem getur breytt þeirri sannfæringu minni.
Ég óska ykkur alls hins besta, og þeir sem voru um kyrrt en fóru ekki í burt eru mínar hetjur. Ég minnist þess að það hafi verið erfitt fyrir ungan mann (hálfgerðan ungling) að fóta sig í nýju umhverfi á ókunnum stað fyrir meira en 30 árum síðan. En það var ekki fyrr en löngu seinna að ég áttaði mig á því að hugrekkið var fólgið í því að vera um kyrrt.
Auðvelda leiðin var að fara.

Ég vona svo sannarlega að þetta byggðarlag eigi bjarta framtíð fyrir höndum. Með bestu kveðju. Kolbeinn Marinísson

Kv. Kolbeinn Marinósson
    Jörundarholti 106
    300 Akranes




Góðra stunda hef ég notið

á Þórshöfn tvö síðastliðin sumur og vona að ég öðlist enn fleiri daga við Þistilfjörð í ár.

Kveðja frá Inga Heiðmari Jónssyni




Halló

21 maí 2008
Langar bara að kasta kveðju á Bakkfirðinga.  Líka til þeirra sem búa
bakvið Gunnólfsvíkurfjallið ;o)
Gunnþórunn Steinarsdóttir


Allt er þegar þrennt er !

22.febrúar 2008

Litlu byggðarlögin umhverfis landið hafa undanfarið fengið að kenna á niðurskurðarhníf sjávarútvegsráðherra er hann fyrst skar niður þorskkvótann og svo nú að hann stöðvaði loðnuveiðarnar.    Þetta kemur litlum sveitarfélögum eins og Langanesbyggð þar sem atvinnan byggist nánast eingöngu á fiskveiðum og fiskverkun og þjónustu við útgerðir afar ílla og tekjutapið er talið í hundruðum milljóna.

Þriðja áfallið kom svo í dag er Flugfélag Íslands tilkynnti að þeir ætluðu að hætta flugi til Vopnafjarðar og Þórshafnar ásamt Grímsey.
og selja þann hluta flugrekstrarins sem sá um þessa þjónustu. Þar með er komin óvissa með flugið til okkar og ekki þar með sagt að nýr aðili taki flugið yfir í sömu mynd.

Já ég sannalega vona að Allt sé komið sem þrennt er  ! og jákvæðar fréttir af landsbyggðamálum verði það sem koma skal.

Vona bara að mótvægisaðgerðirnar verði öflugar...............

Baráttukveðjur
Víðir M Hermannsson




Bara að kvitta fyrir mig

17. febrúar 2008
Skemmtileg síða og frábært myndasafn; gömlu myndirnar sérstaklega.  Bestu kveðjur til allra sem ég þekki. 

Steinunn Marinósdóttir.




Ójá

Ég tek svo sannarlega undir með Birni Guðmundi- Til hamingju bæði Bakkafjörður og Raufarhöfn-- Guð láti gott á vita :)

Kveðja Tobba




1 2 3 næsta síða

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is