Almannavarnir
Skimað eftir birni
Flugvél Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan níu í morgun í leit að hvítabirni sem hugsanlega er á ferli meðfram ströndinni á norðausturhorni landsins. Ungt dýr var fellt í gær í Þistilfirði, og ekki er talið útilokað að það hafi verið í fylgd með öðrum birni. Því hvetur lögreglan í Þingeyjarsýslu og Umhverfisstofnun fólk á svæðinu til að vera á varðbergi úti við ef ske kynni að annar björn sé á landinu enda ísbirnir stórhættuleg dýr og það ekki síst ef þeir eru hungraðir.Gert er ráð fyrir að leitarflugið taki um 4 stundir en upp úr klukkan 10 á að vera orðið nógu bjart til leitar. Þá er þyrlan búin hitamyndavélum.
Áformað er að leita fyrst í Þistilfirði og á ströndinni þar norðureftir. Einnig er áformað að fljúga yfir norðurströnd landsins allt að Skagatá en þyrlan fer síðan til Ísafjarðar síðdegis þar sem hún á að sinna verkefni.
Mynd: Gréta Bergrún Jóhannesdóttir

Almannavarnir
Almannavarnir snúast um það skipulag og stjórnkerfi sem er virkjað á hættustundu, hvort sem um er að ræða hættu frá náttúrunni eða af mannavöldum. Samkvæmt 1. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962 er hlutverk þeirra að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir eftir því sem unnt er að almenningur verði fyrir líkamstjóni eða eigna af völdum hernaðaraðgerða, náttúruhamfara eða af annarri vá, veita líkn og aðstoð vegna tjóns, sem orðið hefur, enda falli þau störf ekki undir aðra aðila samkvæmt lögum.
nánar
1
Viðburðadagatal
|
Fundargerðir |
||
Fundarg. Langanesb. 2010
|
||








