Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
   - Sveitarstjórn  
   - Skrifstofa  
   - Fundargerðir  
   - Áætlanir  
   - Nefndir og ráð  
   - Netföng  
   - Gjaldskrár  
   - Skipulagsteikningar  
   - Innkaupareglur  
   - Samþykktir  
   - Sorphirða  
   - Ársreikningar  
   - Laus störf  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Stjórnsýsla


Göngur hefjast um helgina

Fyrstu göngur í Langanesbyggð hefjast nú um helgina þegar Fagraneslandið verður smalað. Hér má sjá gangnaseðilinn, sem veitir meiri upplýsingar um göngurnar.
Réttað verður í Ósrétt (Sauðanesrétt) fimmtudaginn 9. september og daginn eftir í Hallgilsstaðarétt eða föstudaginn 10. september.
Þriðjudaginn 14. september verður réttað í Tunguselsrétt.


Bókasafnið á Þórshöfn opnað

Bókasafnið á Þórshöfn opnar aftur eftir sumarfrí og fyrsti opnunardagur er mánudagurinn 6. september n.k. Þá verður opið frá kl. 18:00 - 20:00 en opnunartími er sá sami og áður; á mánudögum frá kl. 18:00 - 20:00 og á fimmtudögum frá kl. 17:00 - 19:00.
Safnagestir eru beðnir að skila sem fyrst bókum sem þeir fengu lánaðar fyrir sumarfrí. Sem fyrr er ekkert árgjald fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri og eru allir hvattir til að koma við í bókasafninu sem er vel staðsett á efri hæð íþróttamiðstöðvarinnar.
Bókavörður er Líney Sigurðardóttir.


Síðsumarganga Norðurslóðar

Ferðafélagið Norðurslóð var stofnað á síðasta ári og er félagssvæði þess frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Félagið hefur staðið fyrir nokkrum vel heppnuðum göngum á félagssvæðinu í sumar.  
Nú er komið að næstu göngu Ferðafélagsins Norðurslóðar. Hún verður farin næstkomandi laugardag, þann 4. september og litið á Jökulsá og Jökulsárgljúfur að austan. Gengið verður frá Vestaralandi í Öxarfirði upp með Jökulsá, að Gloppu. Mæting við Vestaraland kl. 13:00. 

Þetta verður létt og skemmtileg fjölskylduganga um fáfarnar slóðir í undurfallegu ævintýraumhverfi Jökulsárgljúfra. Fólk er beðið að taka með sér nesti og góða skó. Veðurspáin er afar góð og vonast er eftir góðri þátttöku.




Blakæfingar á Þórshöfn

Blakæfingar eru hafnar á Þórshöfn og verða þær á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 í vetur. Æfingarnar eru fyrir karla og konur og eru allir hjartanlega velkomnir að sögn áhugafólks um blak, sem stendur fyrir æfingunum.
Þetta er skemmtileg íþrótt og góð hreyfing í góðum félagsskap. Fólk er hvatt til að nýta hina ágætu aðstöðu í íþróttamiðstöðinni Veri, til dæmis með því að mæta á blakæfingu og slá í gegn.


Lausar stöður við Grunnskóla Þórshafnar

Skólaliða vantar við Grunnskóla Þórshafnar sem fyrst. Um tvö stöðugildi er að ræða, annað 60% og hitt 75%.
Helstu verkefni skólaliða eru þrif á skólahúsnæðinu og frímínútnagæsla.
Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 468-1164 / 899-3480 eða í tölvupósti á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu skólastjóra eða á netfangið skolastjori@langanesbyggd.is .


Hlé gert á æfingum í september

Starfsemi Ungmennafélags Langnesinga hefur verið lífleg í sumar, æfingar og mótaþátttaka í frjálsum og fótbolta í fullum gangi, góð þátttaka og góður árangur hjá félaginu. Nú verður tekið frí frá æfingum og íþróttastarfi í september. Áætlað er að birta æfingatöflu og byrja vetrarstarfið í byrjun október.


Fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar

Haldinn verður  fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar fimmtudaginn 2. september  n.k. kl. 17:00  í félagsheimilinu Þórsveri.
DAGSKRÁ:
1.     Fundargerð sveitarstjórnar dags. 19.08.2010
2.     Fundargerð sveitarstjórnar (aukafundur) dags. 23.08.2010
3.     Fundargerð atvinnu-, menningar - og ferðamálanefndar dags. 23.08.2010
4.     Fundargerð húsnæðisnefndar dags. 23.08.2010
5.     Fundargerð landbúnaðarnefndar dags. 23.08.2010
6.     Fundargerð landbúnaðarnefnd dags. 18.08.2010
7.     Fundagerð USB dags. 20.08.2010
8.     Skýrsla sveitarstjóra.
9.     Umsókn um styrk.
10.  Tilnefning í stjórn Fræs ehf.
11.  Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga dags. 27.08.2010
Þórshöfn 30. ágúst 2010,
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri


Á markað með snjöll nýsköpunarverkefni?

Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar.
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnisins:
·         Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
·         Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Í umsókn þarf að koma fram:
·         Skýr lýsing á verkefninu í heild og ætluðum árangri þess
·         Greining á nýnæmi verkefnisins
·         Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
·         Ýtarleg lýsing á þeim verkþáttum sem sótt er um styrk til, s.s. þróunarvinnu og markaðsstarfs
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.
Rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is. Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið tinna@nmi.is.  Umsóknarfrestur er til og með 21. september n.k.


Skólasetning Framhaldsskólans á Laugum

Sunnudaginn 29. ágúst 2010 verður skólasetning í íþróttahúsi Framhaldsskólans á Laugum kl.18.00. Nú í ár munu 12 nemendur stunda nám sitt við Framhaldsdeild Þórshafnar, þar af 7 nýnemar.
Það frumkvöðlastarf sem unnið var með Þekkingarneti Þingeyinga s.l. ár gaf góða raun og hefur aðsókn í nám á framhalds- og háskólastigi stóraukist. Það er því mikið gleðiefni hve samfélagið nýtir vel þann möguleika að stunda nám sitt í heimabyggð. Ljóst er að verkefnið í heild sinni hefur verið borið áfram á jákvæðni, hvatningu og samheldni en án þessara þátta væri þróun þess óframkvæmanleg.
Nú hefjum við nýtt skólaár full eftirvæntingar og eru nemendur Framhaldsskóladeildarinnar hvattir til að fylgjast með helstu upplýsingum á tölvupósti. Verkefnisstjóri er eins og áður Anna Þorsteinsdóttir.


Nýr sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis

Um síðustu mánaðamót tók Íris Björnsdóttir við stöðu sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis af Guðna Haukssyni.
Íris er fædd og uppalin í Hveragerði, viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með meistaragráðu í bankastarfsemi og fjármálum frá Luxembourg School of Finance. Íris flytur ásamt fjölskyldu sinni frá Luxembourg hingað á Þórshöfn. Þau fengu einmitt gáminn sinn heim að dyrum í dag.

Íris og fjölskylda hennar eru boðin velkomin á Þórshöfn um leið og Guðna og fjölskyldu er óskað velgengni í framtíðinni.




Skólasetning Grunnskólans á Bakkafirði

Grunnskólinn á Bakkafirði verður settur mánudaginn 30. ágúst klukkan 17:00. Æskilegt er að foreldrar komi með börnum sínum, segi í bréfi frá skólanum.
Eftir skólasetninguna fara nemendur svo með kennurum í sínar stofur og fá afhentar bækur og stundatöflur. 
Á meðan munu foreldrar ræða um foreldrafélagið og það starf sem unnið verður í vetur.
Þriðjudaginn 31. ágúst hefst kennsla klukkan 10:00 samkvæmt stundaskrá.


Þekkingarnet Þingeyinga - Menntasetrið á Þórshöfn

Nú hefur nafni Þekkingarseturs Þingeyinga verið breytt í Þekkingarnet Þingeyinga. Þetta nýja heiti endurspeglar starfsemi stofnunarinnar betur en hið eldra. Stofnunin Þekkingarnet Þingeyinga er eiginlegt netverk því hún starfar á svæðisvísu í stóru og dreifbýlu héraði en ekki í einu „setri“ á föstum punkti.
Áfram verður talað um Þekkingarsetrið á Húsavík þegar rætt er um þekkingarstarfsemina í heild á Hafnarstéttinni á Húsavík. Að sama skapi um Menntasetrið á Þórshöfn þegar talað er um mennta- og fræðsluklasann á Þórshöfn. Ekki er loku fyrir það skotið að Þingeyingar geti í framtíðinni myndað fleiri slík þekkingarsetur innan starfssvæðisins.
Nú í ágústmánuði hóf Heiðrún Óladóttir störf fyrir Þekkingarnetið í Menntasetrinu á Þórshöfn. Hún leysir af Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem er í fæðingarorlofi. Heiðrún er í hlutastarfi hjá Þekkingarnetinu og starfar fyrst og fremst á símenntunarsviði. Hún hvetur alla sem hafa hug á námi eða vilja fá leiðbeiningar og ráðgjöf um nám að hafa samband í síma 464-5142 eða netfangið heidrun@hac.is. Einnig er óhætt að koma við í Menntasetrinu sem er staðsett í félagsheimilinu, gengið inn frá grunnskólaplaninu.


Verslunardagur á Þórshöfn

Næstkomandi föstudag, þann 27. ágúst verður sannkallaður verslunardagur á Þórshöfn. Verslunar- og þjónustuaðilar hafa tekið sig saman um að bjóða afslætti og góð tilboð sem gaman verður að líta á. Þórshafnarbúar og nágrannar kíkja í verslanir og sérstaklega ættu nágrannar vestan Melrakkasléttu að renna yfir Hólaheiðina, líta á nýja veginn og útsýnið af honum og kíkja á góð tilboð á Þórshöfn.
Einhvers konar markaður mun líklega spretta upp í miðbænum og eru söluaðilar handverks, matvæla og listmuna hvattir til að koma vöru sinni á framfæri.
Ber, gæs og gisting er líka í boði og veðurspáin er fín. Símanúmer hjá gistiaðilum er hér fyrir neðan. - Sjáumst á Þórshöfn!
Þessi fyrirtæki og stofnanir taka þátt:

FÁNASMIÐJAN s. 577-2020. Opið til kl. 18:00. 30% afsláttur af öllum fatamerkingum. Flottar hettupeysur, bolir og sundpokar í skólann.

Veitingastaðurinn EYRIN s. 468-1250. Opið kl. 11:30 - 22:00. Pizzutilboð í sal.

GRILLSKÁLINN s. 468-1174. Opið kl. 9:00 - 21:30. Hamborgaratilboð.

SAMKAUP s. 468-1100. Oið kl. 9:30 - 18:00. Fullt af flottum tilboðum í gangi.

LYFJA s. 464-0609. Opið kl. 9:00 - 16:00. Ýmis góð tilboð.

SUNDLAUGIN s. 468-1515. Opið kl. 8:00 - 20:00. 50% afláttur í sund.

STÚDÍÓ SÓL Í SUNNUVEGI s. 862-8864. Stakur tími kr. 600, föstudag og laugardag.

ÁTVR. Opið kl. 14:00 - 18:00.

Gistiaðilar:
Farfuglaheimilið Ytra-Lóni á Langanesi, s. 468-1242.
Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn, s. 897-5064.
Ferðaþjónusta bænda, Ytra-Álandi í Þistilfirði, s. 468-1290.


Starfskraftur í ræstingar á Nausti

Starfskraftur óskast nú þegar í ræstingar á Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn. Um er að ræða tímabundna ráðningu, þarf að geta hafið störf strax. Vinnutími er frá 9:00 - 14:00. 
Nánari upplýsingar veita Hrefna og Aldís í síma 468-1322 virka daga milli 8:00 og 16:00. Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Langanesbyggðar.


Laust starf í eldhúsi

Langanesbyggd óskar að ráða starfsmann í eldhús í íþróttamiðstöð Þórshafnar þar sem eldað er fyrir leikskóla og grunnskóla Þórshafnar. Um er að ræða fullt starf fram að áramótum
Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 468-1220 eða á netfangið sveitarstjori@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 30. ágúst á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn.


Altarisdúkur gefinn í Skeggjastaðakirkju

Júlía Friðriksdóttir við altarisdúkinn í SkeggjastaðakirkjuMessað var í Skeggjastaðakirkju sunnudaginn 15. ágúst sl. Í messunni var vígður nýr altarisdúkur, gefinn af Júlíu Friðriksdóttur frá Felli sem nú er búsett á Akureyri. Dúkurinn er gefinn til minningar um foreldra hennar Friðrik Oddsson og Helgu Sigurðardóttur sem bjuggu á Felli, auk systkina hennar og tengdaforeldra, Haralds Guðmundssonar og Þórunnar Þórarinsdóttur er bjuggu á Þorvaldstöðum, og barna þeirra.
Dúkinn vann Júlía síðastliðinn vetur og er hann saumaður með harðangri og klaustri.
Þetta var um leið kveðjumessa Sbigniew Zuchowicz organista en hann hverfur nú til annarra starfa og verður organisti í Digraneskirkju í Kópavogi næsta árið. Zbigniew hefur verið organisti í Skeggjastaðakirkju í 17 ár og í prestakallinu öllu nokkur síðustu árin. Hann hefur ásamt konu sinni Theresu og börnum staðið fyrir tónlistarsköpun í kirkjunum undanfarin ár. Verður þeirra sárt saknað. Sóknarbörnin óska þeim góðs gengis á nýjum starfsvettvangi og þakka fyrir mjög góð störf.
Eftir messuna var kirkjugestum boðið í súpu í skólanum á Bakkafirði þar sem Zbigniew og Teresa léku fyrir gesti. Fleiri myndir í myndasafni.
Texti og myndir: Áki Guðmundsson og Brynhildur Óladóttir


Skólasetning Grunnskólans á Þórshöfn

Grunnskóli Þórshafnar verður formlega settur í Þórshafnarkirkju þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 17:00. Að lokinni skólasetningu verður farið í leiki á íþróttavellinum og foreldrafélagið býður upp á grillaðar pylsur. Miðvikudaginn 25. ágúst mæta nemendur í skólann kl. 10:00 og fá afhentar stundaskrár og innkaupalista. Skóla lýkur kl. 12:00 þann dag. Daginn eftir, eða fimmtudaginn 26. ágúst, hefst svo kennsla samkvæmt stundaskrá.
Óvenju margir nýir kennarar koma til starfa við Grunnskólann á Þórshöfn nú í haust. Arnfríður Aðalsteinsdóttir tekur við af Heiðrúnu Óladóttur sem skólastjóri en aðrir nýir kennarar eru:
nánar

Umferð leyfð um Hólaheiði

Nú er sá dagur runninn upp að umferð er leyfð um Hólaheiði, milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar. Frágangur við veginn stendur enn yfir og því eru hraðatakamarkanir og steinkast á nokkrum köflum. Sama gildir um Raufarhafnarlegginn, hann er opinn en með hraðatakmörkun. Verið er að ganga frá köntum, setja upp handrið, stikur, merkingar og fleira. Fólk er beðið að sýna tillitssemi og virða hámarkshraða á veginum.
Hin nýja leið yfir Hófaskarð og um Hólaheiði skiptir miklu máli fyrir íbúa austan Melrakkasléttu og svæðið allt. Leiðin milli Þórshafnar og Húsavíkur styttist um 53 kílómetra, en ekki nóg með það því aflagðir eru vondir vegir með brekkum, beygjum, einbreiðum brúm, bleytu, holum, þvottabretti og öðru torleiði.
Það er sannarlega fagnaðarefni að geta nú sagt eins og fleiri: Þórshöfn, malbik alla leið!


Kennarar á kreiki

Það var glatt á hjalla í morgun þegar starfsfólk grunnskólans á Þórshöfn hittist til að undirbúa skólabyrjun í næstu viku. Og það var ekki bara setið inni, heldur farið út í leiki og þrautir til að efla liðsandann.
Þegar komið var að þessum hópi kennara í skrúðgarðinum undir hádegið voru þau með bundið fyrir augun og veltu fyrir sér hvar í ósköpunum þau væru stödd. Með í leiknum voru kaðall og köttur ásamt fleiru. Eitthvað er enn í gangi á myndinni þó allir séu orðnir sjáandi og ekki annað að sjá en fólk hafi haft gagn og gaman af.


Starfsemi í sumar í Menntasetri Þórshafnar

Í sumar hafa tveir námsmenn haft aðsetur í Menntasetrinu á Þórshöfn og stundað rannsóknir á svæðinu. 
Hildur Ása Henrýsdóttir vann rannsóknarverkefni á vegum Þekkingarnets Þingeyinga. Mikil nýliðun er í landbúnaði við Þistilfjörð og eru flestir ungu bændurnir einnig bændaskóla- eða landbúnaðarháskólagengnir. Er það forvitnilegt í ljósi þess að nágrannasveitirnar í Bakkafirði og á Melrakkasléttu sýna fram á gagnstæða þróun þar sem landbúnaður er þar nú aðeins stundaður á fáum býlum. Markmið verkefnisins er að kanna ástæður þess að þessir einstaklingar ákveða að fara í búskap við Þistilfjörð, athuga hvar þeir telja vera helstu sóknarfæri svæðisins og skoða áherslur þeirra í nýsköpun í landbúnaði og þau tækifæri sem þeir sjá þar til framtíðar. 
Skýrslu Hildar Ásu verður gefin út af Þekkingarneti Þingeyinga og má nálgast hana á heimasíðu stofnuninnar í haust. 
Sunna Björk Ragnarsdóttir vann að samvinnuverkefni á vegum Þekkingarnets Þingeyinga og Nýsköpunarsjóðs námsmanna, heimildaöflun um menningarminjar, sögusagnir og eyðibýli í Þistilfirði. Skýrslan spannar hinar ýmsu sögur úr byggðarlaginu, sumar þeirra þekkir hvert mannsbarn á svæðinu en aðrar eru fáheyrðari. Sannleiksgildi sagnanna kannað, kafað dýpra í sumar en aðrar fá að njóta vafans. Það efni sem safnast verður síðan notað í menningarlegan gagnagrunn fyrir byggðarlagið en hann á að nýtast í þekkingarsköpun fyrir grunnskólabörn og að ýta undir nýsköpun í ferðaþjónustu.
Úrvinnsla úr verkefni Sunnu Bjarkar verður gefin út á bókaformi af Þekkingarneti Þingeyinga og má einnig nálgast hana á heimasíðu stofnuninnar í haust.
nánar

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 næsta síða

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is