Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
   - Sveitarstjórn  
   - Skrifstofa  
   - Fundargerðir  
   - Áætlanir  
   - Nefndir og ráð  
   - Netföng  
   - Gjaldskrár  
   - Skipulagsteikningar  
   - Innkaupareglur  
   - Samþykktir  
   - Sorphirða  
   - Ársreikningar  
   - Laus störf  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Stjórnsýsla


„Stórkostleg ný tækifæri í ferðaþjónustu á Norðurlandi“

Norðurland nýr áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn gegnum beint flug til Akureyrar.
Opinn blaðamannafundur á Hótel KEA, mánudaginn 8. mars, kl: 10.00
Sumarið 2009 gerði Rannsóknamiðstöð ferðamála ítarlega könnun meðal brottfararfarþega í flugi Iceland Express frá Akureyraflugvelli. Var þetta í fyrsta sinn sem slík rannsókn hefur verið gerð og var hún unnin í náinni samvinnu við Flugstoðir. Nú liggja niðurstöður fyrir sem verða kynntar á opnum fundi mánudaginn 8. mars á Hótel KEA kl: 10.00.

Í könnuninni var spurt um ferðavenjur, neyslumynstur og upplifun þeirra erlendu gesta sem fara frá Íslandi um Akureyraflugvöll og ferðamynstur þeirra um Norðurland kortlagt. Var könnunin sett upp í sex hlutum. Í fyrsta lagi voru nokkrar almennar spurningar um Íslandsferð svarenda, sem gefa gleggri mynd af ferðamynstri þátttakenda um áfangastaðinn Ísland. Í þessum hluta var t.a.m. spurt um tilgang ferðar, ferðafélaga, dvalarlengd, hvar viðkomandi kom inn í landið og hvaða landshlutar aðrir en Norðurland voru sóttir heim í ferðinni.
Í öðru lagi voru sérstakar spurningar sem er ætlað að gefa vísbendingar um ferðamynstur farþeganna um Norðurland á meðan á Íslandsdvöl stóð. Hér var sérstaklega spurt um hvaða staðir/svæði á Norðurlandi voru heimsótt, fjölda gistinátta, gistimáta, samgöngumáta og  nýtta afþreyingu.
Í þriðja lagi var spurt um helstu útgjaldaliði. Í fjórða lagi voru spurningar um gæði og upplifun þátttakenda af Norðurlandi og þjónustu þar. Í fimmta lagi voru spurningar um upplýsingaþörf og -notkun þátttakenda könnunarinnar bæði fyrir ferð og í ferðinni. Í sjötta og síðasta lagi voru spurningar sem sneru að flugvellinum sjálfum.

Helstu niðurstöður eru þær að þeir erlendu farþegar sem koma og fara gegnum Akureyraflugvöll dveljast mun lengur á Norðurlandi en aðrir erlendir gestir. Nærri helmingur ferðast aðeins um Norðurland og inná Austurland og er því ljóst að með beinu flugi opnast möguleikar á þróun nýs áfangastaðar í ferðaþjónustu, sem við sjáum þegar móta fyrir nú. Einnig er mögulegt útfrá þeim gögnum sem aflað var að áætla tekjur af komum þessara gesta og þannig einnig hvað mörg störf í ferðaþjónustu gætu orðið bein afleiðing millilandaflugsins. 

Dagskrá:
Á fundinum mun Eyrún Jenný Bjarnadóttir, sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð ferðamála kynna ofangreindar niðurstöður.

Þá mun Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála velta upp hugmyndum um mikilvægi millilandaflugsins fyrir hagkerfið á Norðurlandi og mögulegri fjölgun starfa í ferðaþjónustu á svæðinu ef framtíðaráform ferðaþjónustunnar ná fram að ganga um heilsársflug milli Evrópulanda og Akureyrar.

Einnig mun Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur við Háskólann á Akureyri, skoða í stuttu erindi helstu aðdráttaröfl ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Að lokum verða umræður og fyrirspurnir en í pallborði sitja Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri. Helga Haraldsdóttir, iðnaðarráðuneyti og frummælendur.

Fundi stýrir Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu.




Til baka

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is